Birgitta Mjöll Eyþórsdóttir kennari og eiginmaður hennar , sem er dökkur á hörund, urðu fyrir aðkasti úti á Borgarbraut í Borgarnesi um helgina vegna hörundslitar mannins. Ungu menn með MAGA-húfur á höfði kölluðu níðyrði á manninn út um glugga þegar hjónin voru á göngu heimleiðis eftir máltíð á veitingahúsi.
Birgitta greindi frá atvikinu í íbúahópi Borgnesinga á Facebook:
„Sælir íbúar Borgarbyggðar.
Ég vil deila atviki sem átti sér stað á Borgarbrautinni í gærkvöldi. Ég skrifa þetta í þeirri von, að fólk taki þessa umræðu hvert við annað og börnin sín.
Við hjónin vorum á leiðinni heim í gærkvöldi eftir að hafa farið út að borða. Fjórir ungir menn keyrðu framhjá og öskruðu N-orðið á okkur út um gluggann á bílnum. Þeir voru á rauðum/vínrauðum jeppa og með Trump MAGA (Make America Great Again) derhúfur á höfðinu. Við erum með bílnúmerið og vitum hverjir þetta eru.
Svona framkoma er mjög sláandi og ólíðandi. Við eigum að geta ferðast í okkar bæ, án þess að verða fyrir svona áreiti. Ef þið kannist við þessa drengi eða sjáið ungmenni sem bera þessar Trump húfur á höfðinu, vona ég að þið takið umræðuna við þá varðandi fordóma og almenna kurteisi.
Við ætlum ekki að nafngreina þessa menn eða gefa upp bílnúmerið. Það er ekki ástæðan fyrir þessum pistli. Heldur að vekja umræðu um fordóma í okkar samfélagi. Ef þessum ungu mönnum finnst þetta vera “skemmtun”, þá eru eflaust fleiri á sömu skoðun og vona ég svo innilega að það sé mikill minnihluti. Spyrjum okkur hvernig samfélag við viljum búa okkur og komandi kynslóðum.
Sama hvað er að gerast í heiminum og hvaða pólitísku skoðun við höfum, þá vil ég trúa því, að við getum borið virðingu hvort fyrir öðru og komið vel fram við náungann.
Stöndum saman gegn fordómum !
Þeir eiga aldrei að líðast !“
Í samtali við DV segir Birgitta að þetta atvik sé engan veginn dæmigert fyrir Borgarnes heldur dæmi um óæsilega strauma sem séu að verki í öllu samfélaginu.
„Ástæðan fyrir því að ég greini frá þessu er sú að þetta voru fullorðnir menn að skemmta sér, 20 til 25 ára. Ég hef búið hérna í tíu ár og á fjögur börn sem eru öll brún. Ég hef upplifað ýmislegt en þá frá börnum, eitthvað sem hefur verið leyst með samtali við foreldra. Börn segja bara eitthvað og átta sig ekki á alvarleika orðsins. En þegar maður verður fyrir svona frá fullorðnum mönnum þá vil ég vekja athygli á því og fá umræðuna í gang.“
Hún lætur vel af Borgarnesi almennt. „Þetta er að mörgu leyti mjög flott samfélag og margt gott í gangi.“
Færsla Birgittu á svo sannarlega erindi inn í samfélagsumræðuna en hún hefur hvað eftir annað horfið úr íbúahópnum. Stjórnendur hópsins hafa fullvissað hana um að þeir hafi ekki eytt færslunni og eru búnir að endurbirta hana nokkrum sinnum.
„Það stendur Trump og MAGA í henni og kannski eru einhverjir að tilkynna hana og þess vegna sé hún tekin niður. En ég átta mig ekki á þessu,“ segir Birgitta.
Hún upplýsir jafnframt í spjalli við blaðamann að eiginmaður hennar sé mjög mótfallinn því að vekja á sér athygli með umkvörtunum af þessu tagi. Hann vilji bara vinna og lifa í friði. En Birgitta gat ekki orða bundist yfir framkomu mannanna og vonar að frásögn hennar veki fólki til umhugsunar í samfélaginu.