Frá því var greint í fréttum nýlega að tvö bandarísk börn hefðu fundist hér á landi þann 10. janúar, en þeirra hafði verið leitað síðan í október. Um er að ræða sorglegt mál móður sem glímir við andleg veikindi og taldi að einhver ætlaði að vinna fjölskyldunni mein. Lögreglan í Bandaríkjunum segist þakklát fyrir farsælt samstarf við íslensku lögregluna, en fyrir vikið hafi tekist með hraði að koma börnunum heim.
Samkvæmt frétt DailyMail heitir móðirin Samantha Hogan og býr í Canton í Ohio. Hún er 34 ára gömul og er greind með geðklofa ásamt ofsóknaræði og þurfti sökum þess að taka inn lyf að staðaldri. Fyrir einhverja ástæðu hætti Samantha að taka inn lyfin sín einhvern tímann í september eða október.
Hún fór í kjölfarið að glíma við ranghugmyndir sem varð til þess að hún greip dætur sínar tvær, 8 og 9 ára, og ferðaðist tæpa 18 þúsund kílómetra áður en lögreglan á Íslandi stöðvaði för hennar.
Móðir Samanthu hafði fyrst samband við lögreglu í október og greindi þá frá því að hafa hvorki heyrt í dóttur sinni né barnabörnum í rúman mánuð. Hún hafði spurst fyrir að komist að því að barnabörn hennar höfðu ekki verið að mæta í skólann. Hún sagði lögreglu að Samantha væri veik. Hún myndi aldrei skaða börn sín, en væri þó líklega vopnuð.
Samantha var þarna að flakka um Bandaríkin á bíl sínum. Hún náði að kaupa vegabréf fyrir sig og dætur sínar og freistaði þess að komast til Kanada. Hún var þó stöðvuð á landamærunum eftir að landamæraverðir fundu byssu, skot og rafbyssu í fórum hennar. Landamæraverðir sáu að lögregla hafði lýst eftir Samanthu og dætrum hennar. Misskilningur milli lögregluembætta varð þó til þess að Samantha fengi að fara frjáls ferða sinna.
Næstu vikur flakkaði Samantha áfram um Bandaríkin og birti á sama tíma óhuganlegar færslur á samfélagsmiðlum. Hún taldi að einhver væri að elta mæðgurnar, einhver sem vildi þeim mein. Hún taldi að fólk væri að eitra fyrir henni og dætrum hennar, einhver hefði brotist inn í raftæki hennar og að hún væri hundelt. Hún hringdi hrædd í móður sína í lok október og sagðist vera við það að gefast upp, hún væri að glíma við sjálfsvígshugsanir og væri mikið niðri fyrir.
Það var svo í byrjun janúar sem bifreið Samanthu fannst yfirgefin við flugvöll í Denver. Hún hafði flogið með dætur sínar til London. Þaðan flugu mæðgurnar til Jersey og loks enduðu þær á Íslandi.
„Íslenska lögreglan gerði okkur þann greiða að fylgjast með ferðum þeirra þar til við gátum fengið heimild frá dómstólum til að taka börnin í okkar umsjón,“ sagði lögreglustjórinn í Canton, Ohio, við News5Cleveland.
Fulltrúi sérstakrar lögregludeildar dómsmálaráðuneytis Bandaríkjanna (e. U.S. Marshals Service) segir málið dæmi um farsælt og víðtækt samstarf ólíkra lögregluembætta. Það sé gjarnan erfitt að endurheimta börn sem er búið að flytja erlendis en hér hafi allt gengið eins og í sögu.
„Rannsakendur stóðu sig með eindæmum vel. Við erum heppin að eiga sterka og trausta samstarfsaðila í lögreglunni sem eiga hrósa skilið fyrir að hjálpa okkur við að koma börnunum heim.“