„Þetta eru einfaldlega hörmulegar tölur,“ sagði Palle Ydstebø, rektor við norska varnarmálaskólann, í samtali við Norska ríkisútvarpið um niðurstöður greiningar Oryx, sem gerir sjálfstæðar greiningar á einu og öðru varðandi stríðið í Úkraínu. Eftir að hafa meðal annars rannsakað gervihnattarmyndir af birgðageymslum rússneska hersins komst Oryx að þeirri niðurstöðu að rúmlega 20.000 rússneskir skriðdrekar og önnur ökutæki hersins hafi verið eyðilögð eða skemmd í stríðinu.
Ydstebø telur þetta vera mikinn vanda fyrir Pútín því magnið sé svo mikið að framleiðslugeta Rússa haldi ekki í við tjónið. Þeir geti einfaldlega ekki framleitt nógu mikið, nógu hratt til að bæta upp fyrir tjónið.
Hann sagðist telja að tjón Rússa sé í raun meira en tölurnar frá Oryx sýni. Hann sagðist telja að tveir þriðju hlutar þeirra skriðdreka, sem Rússar áttu áður en þeir réðust inn í Úkraínu, séu ónýtir.
Í mars 2023 fór að sjást til rússneskra skriðdreka, frá tímum síðari heimsstyrjaldarinnar, á leið til Úkraínu. Á þeim grundvelli og vegna gervihnattarmyndanna, telur Ydstebø að Rússar séu líka að verða búnir með þessi gömlu hertól sín.