Kristján Einar Sigurbjörnsson, sem best er þekktur undir gælunafninu Kleini, greindi frá því í viðtali við Smartland þann 5. desember síðastliðinn að hann væri búinn að opna húsgagnaverslun, sem væri þó enn í þróun. Sagði Kristján að markmiðið væri að bjóða upp á stóra og aðgengilega verslun með fjölbreyttu úrvali þegar allt væri klárt.
„Eins og staðan er núna, er þetta lagersala þar sem ég sel í gegnum Instagram og Facebook. Þetta gerir mér kleift að sjá hver eftirspurnin er og hvaða vöruflokkar fá mestan áhuga, á meðan ég bíð eftir að heimasíðan verði klár. Það hefur tekið tíma að koma þessu af stað, því ég ákvað í byrjun að byggja þetta frá grunni án þess að leggja út krónu úr eigin vasa. Ég byrjaði með eina vöru, gerði hana upp, seldi hana og keypti tvær vörur í staðinn. Þannig hef ég smám saman byggt þetta upp – algjörlega með vinnunni minni og án fjár úr mínum vasa eða annars. Því ég trúi því að ef maður leggur á sig vinnuna sjálfur þá skilar það sér,“ sagði Kristján við Smartland.
Tæpum tveimur mánuðum seinna virðist lítið að gerast, 28 færslur eru á Facebook-síðu Heimilis Heild, flestar með dýnum og sú síðasta síðan 10. nóvember 2024. Á Instagram þar sem segir um fyrirtækið: „Heimilis Heild Heimilis Heild – ný verslun með hágæða heimilisvörur á hagstæðu verði🤝 Hafðu samband til að bóka tíma og fá faglega aðstoð við valið!,“ eru færslurnar sömuleiðis fáar, 11 talsins og sú síðasta síðan 18. desember 2024, einnig flestar með dýnum.
Ein auglýsing stingur þar í stúf
„Skapaðu einstaka fegurð í þínu heimili!
✨ Lúxus Gullkúlublómapottar ✨
Komdu með stílhreina og glæsilega stemningu í hvaða rými sem er með þessum einstöku spegilgljáandi gull vösum!
👉 Takmarkað magn – pantaðu þitt sett í dag!
Hafðu samband í skilaboðum til að tryggja þér þessa einstöku blómapotta.
Verð fyrir sett: 25.990
🚚Heimsending í boði🚚“
View this post on Instagram
Ekkert vörumerki er á lúxusblómapottunum, stærð eða annað.
Allar upplýsingar um þá má hins vegar finna á Alibaba, Shein, Aliexpress og fleiri slíkum sölusíðum, þar sem kaupa má vörur hræbillegar af verslunarrisunum. Þegar myndin sem Kleini notar til að auglýsa vöruna er gúggluð má finna nákvæmlega sömu mynd á vef Alibaba.
Tvö verð eru í boði 2,63 dalir og 4.26 dalir, sem samkvæmt reiknivél á vef Íslandsbanka í dag er 367 krónur og 595 krónur. Settið er þannig á 962 krónur frá erlenda vefverslunarrisanum, en vilji menn ekki bíða má kaupa settið á 25.990 krónur í verslun Kleina og fá heimsent.
Vakin var athygli á málinu í gær í Facebook-hópnum Vertu á verði-eftirlit með verðlagi.
Viðbrögðin létu ekki á sér standa:
„Vá hvað þetta er sturlað.“
„Að þau skulu líka stela myndinni þykir mér alveg ótrúlega fyndið þetta kallar maður álagningu.“
„Þetta er alveg þvílíkt ómerkilegt !!.“
Kona eins segist ánægð með að neytendur séu að opna augun fyrir slíkum viðskiptaháttum: „Ég er svo glöð að sjá fólk vera að opna augun fyrir þessu. Við systur höfum reynt að benda fólki á þetta í hinum og þessu sölugrúppum í gegnum tíðina sem hefur yfirleitt farið svo að færslunum okkar er eytt, við vændar um lygi og okkur hent út úr grúppunum.“