Sara, sem er einnig þekkt undir nafninu Sara Oskarsson, deilir þar tölvupósti sem hún fékk frá leikskóla dóttur sinnar þar sem minnt er á „bóndadagskaffið“ þar sem pabbar og afar eru boðnir velkomnir í hressingu og samverustund. Bóndadagurinn er næstkomandi föstudag.
„Fyrir utan það að nú ganga vírusar eins og eldur í sinu um allt, sérstaklega á leikskólum þá hafa allir foreldrar ekki tækifæri til þess að taka endalaust skerta daga úr vinnu,“ segir Sara í færslunni en í athugasemd segist hún hafa sent tölvupóst til leikskólans þar sem hún lýsir furðu sinni á því að leikskólinn sé að halda sérstakt bóndadagskaffi.
Birtir hún tölvupóstinn sem hún sendi þar sem hún segir meðal annars:
„Það var mikil umræða í þjóðfélaginu um þessar endalausu kröfur á tíma og orku foreldra að mæta á alla þessa hluti og ekki allir sem hafa svigrúm til þess að taka tíma úr vinnu til að mæta á svona.”
Sara bendir einnig á í tölvupóstinum að við þetta bætist að ekki eiga öll börn föður og/eða afa. Um sé að ræða ákveðna tímaskekkju.
„Ég vona að þú takir þessari gagnrýni ekki illa, veit að þetta kemur frá fallegri hugsun allt saman en þetta er bara svo mikill bjarnargreiði fyrir foreldra og fæstir þora að segja neitt,“ segir hún meðal annars en umræðurnar má sjá í færslu Söru hér að neðan.