Nokkur ungmenni misþyrmdu karlmanni á Akranesi á einstaklega hrottafullan hátt í kjölfar tálbeituaðgerðar en maðurinn taldi sig vera að koma til fundar við barnunga stúlku með kynlíf í huga. Ungmennin misþyrmdu manninum með tveimur járnkylfum og hnífi í langan tíma og var árásin lífshættuleg. Maðurinn lifði hana af en er enn þungt haldinn, samkvæmt heimildum DV. Árásin átti sér stað á síðasta ári, DV hefur ekki staðfestar upplýsingar um hvenær. Lögregla mun hafa málið til rannsóknar og ungmennin eru með stöðu sakborninga í rannsókninni.
Nútíminn greindi frá því í gær að hópur íslenskra ungmenna hafi um skeið lagt gildrur fyrir karlmenn sem reyna að komast í kynni við börn á samfélagsmiðlum og fengið mennina til að koma til fundar við aðila sem þeir telja vera barnungar stúlkur, frá aldrinum 11 til 14 ára. Þegar komið er á stefnumótsstaðinn mætir tálbeituhópurinn mönnunum og misþyrmir þeim.
DV fjallaði um málið í morgun og ræddi við Ævar Pálma Pálmason, yfirmann kynferðisbrotadeildar lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu, sem varaði eindregið við þessu athæfi og sagði lögreglu uggandi yfir því. Mikil hætta sé á því að árásarþolarnir skaðist varanlega og jafnvel lífshættulega.
Samkvæmt öðrum heimildum DV er óttast að tálbeituhópurinn eigi eftir að fremja manndráp verði hann ekki stöðvaður. Er það ekki síst rakið til áðurnefndrar árásar á mann á Akranesi sem var einstaklega hrottafull og heiftarleg og stóð yfir í mjög langan tíma. Myndskeið af þeirri árás og fleiri árásum hópsins hafa verið birt á Instagram og verið í nokkurri dreifingu á netinu.
Samkvæmt heimildum DV býr tálbeituhópurinn yfir upplýsingum um u.þ.b. 200 karlmenn sem hópurinn hefur staðið að því að reyna að komast í kynferðisleg kynni við börn, stúlkur sem karlmennirnir halda að séu 11 til 14 ára. Dæmi er um mann sem vildi komast við samband við stúlku sem hann taldi vera 9 ára.
Mennirnir eru margir á miðjum aldri og jafnvel í virðulegum stöðum í samfélaginu. Er fáheyrt, ef ekki einsdæmi, að safnað hafi verið saman svona miklum upplýsingum um íslenska meinta barnaníðinga. Ekkert liggur fyrir um að þessir menn hafi verið í sambandi hver við annan og reynt að sameinast í brotum sínum en það er þó ekki útilokað. Allt bendir þó til að flestir þeirra þekkist ekki og vekur óhug að svo margir karlmenn reyni að komast í samband við börn í gegnum samfélagsmiðla, í mörgum tilvikum karlmenn sem virðast vera fyrirmyndarborgarar.
Hinir meintu barnaníðingar hafa í meirihluta tilvika verið afhjúpaðir á Snapchat. Tálbeituhópurinn býr yfir miklum fjölda skjáskota af spjalli karlmannanna við aðila sem þeir telja vera börn, þar sem mennirnir lýsa ótvírætt yfir vilja til að hafa samræði við barnungar stúlkur. Ljóst er að gögnin sem hópurinn býr yfir eru mjög sláandi og má jafnvel ganga svo langt að fullyrða að gögnin afhjúpi útbreidda barnagirnd á meðal íslenskra karlmanna.