Trump tekur við forsetaembættinu eftir nokkra daga og Joe Biden, fráfarandi forseti, hefur nýtt síðustu daga til að ljúka þeim verkum sem hann telur sig þurfa að ljúka áður en hann lætur af embætti.
Eitt af síðustu verkum hans var að bæta enn í refsiaðgerðirnar gegn Rússlandi með því að bæta rúmlega 200 rússneskum fyrirtækjum og einstaklingum og 180 skipum á listann yfir þá sem refsiaðgerðirnar ná til.
Refsiaðgerðunum er ætlað að takmarka tekjur Rússa af hinum miklu orkuauðlindum sínum og þannig draga úr getu Pútíns til að fjármagna stríðið í Úkraínu.
Norska ríkisútvarpið segir að Kimberly Donovan, hjá The Atlantic Council, segi að þetta sé í fyrsta sinn sem Bandaríkin reyni að loka alveg á möguleika Rússa til að selja olíu úr landi.
Edward Fishman, hjá Foreign Policy, telur að refsiaðgerðirnar geti veitt Donald Trump ákveðinn ávinning þegar hann tekur við forsetaembættinu því þær geti styrkt samningsstöðu hans varðandi málefni Úkraínu.
Refsiaðgerðir Vesturlanda áttu að gera út af við Rússa 2022 en þrátt fyrir gríðarlegar verðhækkanir í landinu og himinháa vexti, þá hefur rússnesk efnahagslíf komist þolanlega í gegnum þær. Það sem hjálpar Rússum einna mest er að þeir hafa getað selt olíu en Kínverjar og Indverjar kaupa hana. „Skuggafloti“ rússneskra olíuflutningaskipa flytur olíuna úr landi og færir Pútín þannig milljarða í ríkissjóð, peninga sem eru notaðir til að fjármagna stríðsreksturinn.
En nýjast útspil Biden getur að mati sérfræðinga haft mikil áhrif á olíusölu Rússa.