fbpx
Þriðjudagur 22.apríl 2025
Fréttir

Tónlistarsjóður veitir 77 milljónum til 74 verkefna í fyrri úthlutun ársins 2025

Ragna Gestsdóttir
Sunnudaginn 12. janúar 2025 12:33

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Fimmtudaginn 9. janúar var haldin móttaka í Tónlistarmiðstöð fyrir styrkhafa fyrri úthlutunar Tónlistarsjóðs 2025. Þetta er í annað sinn sem úthlutað er úr öllum deildum Tónlistarsjóðs sem stofnaður var í fyrra.

María Rut Reynisdóttir, framkvæmdastjóri Tónlistarmiðstöðvar, bauð gesti og styrkhafa velkomna í hús. Í kjölfarið flutti tónlistarkonan Árný Margrét  tvö lög fyrir viðstadda og svo ávarpaði Logi Einarsson, menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra, samkomuna og færði handhöfum hæstu styrkja blómvendi eftir að fulltrúar úthlutunarnefnda höfðu gert grein fyrir niðurstöðum.

María Rut Reynisdóttir, framkvæmdastjóri Tónlistarmiðstöðvar býður gesti velkomna í hús.

„Aðdráttarafl tónlistarinnar skapar tekjur og verðmæti langt út fyrir það sem við leggjum til hennar. Þrátt fyrir ítrekaða útreikninga þurfa talsmenn skapandi greina sífellt að réttlæta stuðning ríkisins við listgreinar. Að margföldunaráhrifin fyrir hagkerfið réttlæti hann ekki og að tónlistarfólk sem nær ekki ásættanlegum vinsældum geti einfaldlega fundið sér eitthvað annað að gera.  Þetta hugarfar lýsir  mikilli skammsýni – en líklega aldrei eins mikið og nú. Á tímum þar sem gervigreindin getur pumpað út þúsundum laga með einum smelli hefur aldrei verið mikilvægara að styðja við raunverulegan sköpunarkraft, þessa frumþörf mannsins, sem sameinar fólk og dregur það heimshorna á milli. Við eigum að styðja við tónlist sem sprettur úr mennskunni og miðlar raunverulegum tilfinningum, sameinar okkur eða ögrar. Við eigum því ekki aðeins að styðja við skapandi greinar fyrir hagkerfið, heldur einnig fyrir mannlífið sjálft!“

segir Logi Einarsson, menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra.

Logi Einarsson, menningar, nýsköpunar- og háskólaráðherra ávarpar samkomuna.
Árný Margrét lék fyrir gesti af sinni einskæru snilld.

Alls bárust sjóðnum 424 umsóknir en til úthlutunar voru rétt rúmar 77 milljónir.

Hæstu Tónlistarstyrki úr deild frumsköpunar og útgáfu hlutu Bríet, Celebs, Elín Hall, hist og, Jelena Ciric, Jófríður Ákadóttir, Kári Egilsson, Sara Mjöll Magnúsdóttir og Valdimar. Þau fengu öll styrk upp á 1,5 milljón hvert.

‍Ásgeir Aðalsteinsson (Hljómsveitin Valdimar), Valgeir Skorri (Celebs), Margrét Arnardóttir (f.h. Jelenu Ciric), Kári Egilsson, Elín Hall og Eiríkur Orri (hist og) taka við tónlistarstyrkjum sem Logi Einarsson menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra og Sindri Ástmarsson, formaður úthlutunarnefndar, afhentu.

Hæstu Flytjendastyrki úr deild lifandi flutnings, upp á 2 m.kr. hvort, fengu Barokkbandið Brák og Kammeróperan. Að auki hlaut Sinfóníuhljómsveit unga fólksins 1,5 m.kr. Í styrk.

Engir nýir langtímasamningar voru veittir í þessari úthlutun en eftirfarandi verkefni eru með langtímasamninga í gildi 2025:

  • Nordic Affect – 2,5 m.kr. (2025 -2026)

  • Caput – 6 m.kr. (2024-2026)

  • Kammersveit Reykjavíkur – 5 m.kr. (2024-2026)

  • Cauda Collective 1 m.kr. (2024-2025)

Kjartan Óskarsson (f.h. Kammeróperunnar), Andreas Guðmundsson (f.h. Sinfóníuhljómsveitar unga fólksins) og Guðbjörg Hlín Guðmundsdóttir (Barrokkbandið Brák) taka við flytjendastyrkjum sem Logi Einarsson, ráðherra og Guðmundur Birgir Halldórsson, f.h. úthlutunarnefndar, afhentu.

Hæstu Viðskiptastyrki úr deild þróunar og innviða hlutu INNI, Jazzhátíð Reykjavíkur og OPIA Community uppá 3 m.kr hvert. Þá hlaut Kona forntónlistarhátíð 2,5 m.kr. í styrk.

Engir nýir langtímasamningar voru veittir í þessari úthlutun en eftirfarandi verkefni eru með langtímasamning í gildi 2025:

  • Myrkir músíkdagar – 4 m.kr. (2025-2026)

  • Óperudagar – 4 m.kr. (2024-2026)

  • Sönghátíð í Hafnarborg – 2 m.kr. (2024-2026)

  • Reykholtshátíð – 1 m.kr. (2024-2026)

  • Bræðslan – 1,5 m.kr. (2024-2026)

  • Sumartónleikar í Skálholti – 4 m.kr. (2024-2025)

  • Iceland Airwaves – 6 m.kr. (2024-2026)

  • Mengi – 3 m.kr. (2024-2025)

Árni Þór Árnason (OPIA), Colm O’Herlihy (Inni Music), Pétur Oddbergur Heimisson (Jazzhátíð Reykjavíkur) og Diljá SIgursveinsdóttir (Kona forntónlistarhátíð) taka við viðskiptastyrkjum sem Logi Einarsson, ráðherra, og glaðbeittur Arnar Eggert Thoroddsen, f.h. úthlutunarnefndar, afhentu.

‍Hæstu Markaðsstyrki úr útflutningsdeild hlutu Ólöf Arnalds uppá 2 m.kr. og Árný Margrét uppá 1,5. m.kr.‍

Árný Margrét og Sveinn Snorri Sverrisson (f.h. Ólafar Arnalds) taka við blómum frá Loga Einarssyni og Önnu Rut Bjarnadóttur, verkefnastjóra hjá Tónlistarmiðstöð.

Heildarlistann um veitta styrki má finna hér.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 19 klukkutímum

Fær ekki að reisa litla virkjun á eigin jörð – Starfsmenn Skipulagsstofnunar og annars sveitarfélags sögðu ekki hafa verið rétt staðið að synjuninni

Fær ekki að reisa litla virkjun á eigin jörð – Starfsmenn Skipulagsstofnunar og annars sveitarfélags sögðu ekki hafa verið rétt staðið að synjuninni
Fréttir
Fyrir 22 klukkutímum

Frans páfi farinn á vit feðra sinna

Frans páfi farinn á vit feðra sinna
Fréttir
Í gær

Kennari á Akureyri segir grein Grafarvogsbúa um blauta drauma borgarstjórnar afhjúpandi – „Grafarvogsgremjan er þá eftir allt saman stéttahroki“

Kennari á Akureyri segir grein Grafarvogsbúa um blauta drauma borgarstjórnar afhjúpandi – „Grafarvogsgremjan er þá eftir allt saman stéttahroki“
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Kærastinn að sökkva ofan í hyldýpi hægri samsæriskenninga – Spyr hvað sé til ráða?

Kærastinn að sökkva ofan í hyldýpi hægri samsæriskenninga – Spyr hvað sé til ráða?
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Strútur réðst á Boris Johnson – „Of fyndið til þess að deila ekki“

Strútur réðst á Boris Johnson – „Of fyndið til þess að deila ekki“
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Þórður segir mjög mikilvægt að íslenska þjóðin sigri áróðursstríð útgerðarinnar – „Nú þarf að anda í kviðinn“

Þórður segir mjög mikilvægt að íslenska þjóðin sigri áróðursstríð útgerðarinnar – „Nú þarf að anda í kviðinn“
Fréttir
Fyrir 4 dögum

Kristján Loftsson harðorður – „Alþingi ræður engu í dag hér“

Kristján Loftsson harðorður – „Alþingi ræður engu í dag hér“