fbpx
Mánudagur 24.mars 2025
Fréttir

Jónas missti góðan vin í hryðjuverkaárásinni í New Orleans – „Bandbrjálaður íslamskur hryðjuverkamaður ákvað að aka yfir fólk“

Ágúst Borgþór Sverrisson
Sunnudaginn 5. janúar 2025 11:29

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Jónas Sigurgeirsson útgefandi kynntist vel Íslandsvininum Edward Pettifer, sem lét lífið í hryðjuverkaárásinni í New Orleans á nýársdag. Eins og mbl.is greinir frá tengdist Pettifer bresku konungsfjölskyldunni. Hann var stjúp­son­ur Al­exöndru Petti­fer, eða Tiggy, sem gætti Vil­hjálms og Harry Bretaprinsa er þeir voru börn. Karl konungur hefur haft samband við fjölskyldu Pettifer og vottað þeim persónulega samúð sína.

Öfgamaðurinn Shamsud-Din Jabbar myrti a.m.k. 14 manns í New Orleans á nýársdag og slasaði um 35, er hann keyrði pallbíl inn í mannfjölda á Bourbon-stræti, þar sem verið var að fagna nýju ári (sjá ruv.is). Meðal hinna látnu var Pettifer. Fyrir árásina hafði Jabbar lýst yfir stuðningi við hryðjuverkasamtökin sem kenna sig við íslamskt ríki.

Edward Pettifer var mikill Íslandsvinur en hann starfaði hér mörg sumur sem leiðsögumaður fyrir laxveiðifólk. „Hann var algjört náttúrubarn,“ segir Jónas í samtali við DV. „Hann gædaði fjölda Íslendinga og var mikill gæðadrengur. Þetta er mjög sorglegt, hann var aðeins 31 árs gamall.“

Jónas minnist Pettifer í lokaðri færslu á Facebook-síðu sinni og birtir meðfylgjandi mynd af þeim félögum úr veiðiferð. Jónas skrifar:

„Ég sá hann fyrst í flugvélinni á leið til Egilsstaða, glaðbeittan og skrafhreifinn náunga. Ekki vissi ég þá að næstu þrjá daga myndum við verja öllum stundum saman úti í á. Spjölluðum saman um heima og geima á meðan hann leiðbeindi mér í veiðinni í Selá. Hann sagði mér frá því að faðir hans hefði tekið hann með í stangveiði frá sex ára aldri og smitað hann af veiðibakteríunni. Góður vinur Vilhjálms Bretaprins sem hann bar afar vel söguna. Hann var í senn fullur lífsgleði og augljóslega með 10 í lífsleikni. Góður drengur, léttur í lund, enskur í öllum háttum og hógvær. Nú er hann allur af því að einhver bandbrjálaður íslamskur hryðjuverkamaður ákvað að aka yfir fólk í á nýársgleði í New Orleans. Blessuð sé minning Edwards Pettifer.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 20 klukkutímum
Eldsvoði í Hafnarfirði
Fréttir
Í gær

Hópslagsmál í miðborginni

Hópslagsmál í miðborginni
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Hilmar Þór um stöðuna í Evrópu – „Fortíðin hræðir þegar maður hugleiðir þetta“

Hilmar Þór um stöðuna í Evrópu – „Fortíðin hræðir þegar maður hugleiðir þetta“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Gufunesmálið: Landsréttur stytti gæsluvarðhald hjá einum sakborninganna

Gufunesmálið: Landsréttur stytti gæsluvarðhald hjá einum sakborninganna
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Coda Terminal rís ekki í Hafnarfirði

Coda Terminal rís ekki í Hafnarfirði