fbpx
Miðvikudagur 26.mars 2025
Fréttir

Landlæknir Bandaríkjanna vill vara við krabbameinshættu sem fylgir áfengisneyslu – Áfengisiðnaðurinn nötrar

Ritstjórn DV
Laugardaginn 4. janúar 2025 18:00

Rauðvín er einn vinsælasti áfengi drykkurinn.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Landlæknir Bandaríkjanna, Vivek Murthy, kallar eftir því að áfengir drykkir verði merktir sérstaklega og þar sé varað við því að neysla þeirra geti aukið líkurnar á krabbameini, ekki ósvipað og gert hefur verið varðandi tóbaksvörur. Suður-Kórea og Írland eru dæmi um lönd þar sem slíkar reglur hafi verið samþykktar.

Segir Murty að slíkar viðvaranir hafi gefist og í ljósi upplýsinga sem sýni fram á meiri skaðsemi áfengis en áður hefur verið talið sé fullt tilefni til að vara neytendur við. Að sögn Murty megi ár­lega megi rekja um 100 þúsund krabba­meinstil­felli og um 20 þúsund and­lát til krabba­meins vegna áfeng­isneyslu í Banda­ríkj­un­um.

Yfirlýsing Murty hefur vakið mikla athygli á heimsvísu og er áfengisiðnaðurinn ógnarstóri sagður nötra í kjölfarið. Ljósið í myrkrinu er gríðarlegur vöxtur í neyslu óáfengra drykkja, sem líkja eftir bjórum, vínum og jafnvel sterkjum drykkjum, og eru áfengisrisarnir í síauknum mæli að beina sjónum sínum að þeim markaði.

Heil­brigðis­yf­ir­völd í Banda­ríkj­un­um hafa gefið það út að dag­leg neysla áfeng­is eigi að há­marki að vera tvær ein­ing­ar hjá karl­mönn­um og ein ein­ing hjá kven­fólki. Ný­leg­ar rann­sókn­ir hafa þó sýnt að um 17% af þeim sem halda sig inn­an þess­ara marka fá samt krabba­mein þar sem helsta orsökin er sögð neysla áfeng­is.

Bein tengsl eru milli áfengisneyslu og sjö lífhættulegra krabbameina, meðal annars í lifur, munni og brjóstum kvenna.

Segir Murthy að valdið til að koma þessum breytingum á liggi hjá bandaríska þinginu en óvíst er hvort að ný ríkisstjórn Donald Trump muni svara ákallinu. Trump bragðar reyndar sjálfur ekki áfengi og hefur í raun skömm á þessum göróttu drykkjum. Má rekja það til andláts bróður hans, Fred, árið 1981, en hann átti í erfiðri glímu við Bakkus og fékk hjartaáfall 42 ára gamall sem rekja má til neyslunnar.

Þá er Robert F. Kennedy yngri, heilbrigðisráðherra Bandaríkjanna, fyrrum alkóhólisti og enginn aðdáandi áfengisiðnaðarins. En hagsmunirnir eru gríðarlegir og vandséð er hvort að Trump og félagar taki slaginn.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 16 klukkutímum

Jákvæð rekstrarafkoma fimmta árið í röð 

Jákvæð rekstrarafkoma fimmta árið í röð 
Fréttir
Fyrir 17 klukkutímum

Haukur hraunar yfir RÚV og segir sannleiksgildi hafa verið sniðgengið og falsfréttir fluttar – „Jók á tortryggni og trúnaðarbrest“

Haukur hraunar yfir RÚV og segir sannleiksgildi hafa verið sniðgengið og falsfréttir fluttar – „Jók á tortryggni og trúnaðarbrest“
Fréttir
Í gær

Áfellist RÚV og segir lágmark að hafa staðreyndir um einkalíf stjórnmálamanna réttar

Áfellist RÚV og segir lágmark að hafa staðreyndir um einkalíf stjórnmálamanna réttar
Fréttir
Í gær

Meintur brotaþoli var kærður fyrir árás á Hauk – Lögregla felldi niður málið og ákærði Hauk fyrir manndrápstilraun

Meintur brotaþoli var kærður fyrir árás á Hauk – Lögregla felldi niður málið og ákærði Hauk fyrir manndrápstilraun
Fréttir
Í gær

Albani sem grunaður var um fíkniefnasölu rekinn úr landi – Gekk í málamyndahjónaband til að fá að dvalarleyfi

Albani sem grunaður var um fíkniefnasölu rekinn úr landi – Gekk í málamyndahjónaband til að fá að dvalarleyfi
Fréttir
Í gær

Urðar yfir Hallgrím í löngum reiðilestri um hálfs árs gamalt viðtal – „Sumt einfaldlega gerir maður ekki. Maður sýnir sorg annarra virðingu“

Urðar yfir Hallgrím í löngum reiðilestri um hálfs árs gamalt viðtal – „Sumt einfaldlega gerir maður ekki. Maður sýnir sorg annarra virðingu“
Fréttir
Í gær

Fyrrum þingkona mjög ósátt við að Arna Magnea sé ekki tilnefnd til Edduverðlauna – „Þöggunin og glerþökin færast nær“

Fyrrum þingkona mjög ósátt við að Arna Magnea sé ekki tilnefnd til Edduverðlauna – „Þöggunin og glerþökin færast nær“
Fréttir
Í gær

Ísland sagt vera besta land í heimi fyrir innflytjendur

Ísland sagt vera besta land í heimi fyrir innflytjendur