fbpx
Þriðjudagur 03.september 2024
Fréttir

Bryndísar Klöru minnst með samverustund í Lindakirkju – „Bryndís er hetja og mun bjarga mörgum mannslífum í framtíðinni“

Ragna Gestsdóttir
Þriðjudaginn 3. september 2024 18:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

„Bryndís sem fermdist í Lindakirkju vorið 2021 hafði hlýja nærveru, björt og falleg augu og var einstök stóra systir og fyrirmynd fyrir Vigdísi níu ára systur sína. Hún var augasteinn foreldra sinna, ömmu og afabarn af bestu gerð, góð vinkona, sönn og heil.“

Þannig er Bryndísar Klöru Birgisdóttur minnst í færslu Lindakirkju. Bryndís Klara lést föstudaginn 30. ágúst af sárum sínum eftir alvarlega hnífstunguárás á Skúlagötu á Menningarnótt laugardaginn 24. ágúst. Bryndís Klara var 17 ára.

„Engin orð fá lýst þeirri sorg sem fjölskylda og ástvinir elsku Bryndísar Klöru, sem stungin var til bana á menningarnótt, eru að upplifa þessa dagana og hversu langur og dimmur dalur er framundan í lífi svo margra. Öryggiskennd okkar allra hefur skaðast.“

Með færslunni má sjá mynd af henni sem Sr. Guðni Már tók á bryggjunni á feðginahelgi í Vatnaskógi vorið 2020 og þar er Bryndísi Klöru vel lýst. „Að passa upp á að litla systir kæmist fyrst upp úr bátnum, síðan dregur hún bátin að bryggju til að pabbi fari öruggur frá borði. Þannig á lífið að virka, að við gætum hvort að öðru og tryggjum að allir komist öruggir í höfn. Við erum kölluð til þess að skapa þannig samfélag.“

Forgangsmál að aðstoða aðstandendur Bryndísar Klöru

Í færslunni segir að prestar Lindakirkju hafa sett í forgang að aðstoða foreldra og fjölskyldu, vinkonur og skólafélaga undanfarna viku, vegna stærðar verkefnisins hafa prestar og djáknar úr öðrum sóknum verið kölluð til og verkefnum útdeilt.

„Við í Lindakirkju, eins og þjóðin öll, erum harmi sleginn. Við vildum að það væru til töfraorð sem hugga og geta breytt stöðunni en þau eru engin til, þetta er óbærilegt og verður það áfram. Kirkjan á heldur ekki að þykjast vera töframaður, fremur að vera eins og ljósmóðir. Ljósmóðir sem stendur traustum fótum og heldur í höndina þegar hríðar og þjáning gengur yfir og segir uppörvandi: „Þú getur þetta, ég er hér með þér, og þú munt komast í gegnum þetta. Við erum ekki ein á ferð, Guð grætur með okkur, huggar og styrkir.“

Við ætlum að gera allt sem við getum til að halda utan um þau sem syrgja svo sárt.“

Minningarstund haldin á sunnudag 

Til að grípa skólafélaga og vini Bryndísar Klöru var haldin minningarstund í Lindakirkju á sunnudaginn í samvinnu við Versló og Salaskóla. Óskar Einarsson tónlistarstjóri Lindakirkju lék ljúfa tóna og Katrín Valdís Hjartardóttir söng. Ásta Ágústdóttir djákni og formaður áfallaráðs Kópavogsbæjar fór yfir tilfinningar og viðbrögð huga og líkama í áföllum. Prestar Lindakirkju stýrðu stundinni og skólastjórnendur Versló fluttu ávarp til nemenda sinna. Fulltrúar Kópavogsbæjar, velferðarsviðs, sálfræðingar og Rauði krossinn voru til staðar.

Að eilífu þakklátar fyrir að hafa átt Bryndísi Klöru sem vinkonu

Mikilvægustu skilaboðin komu þó frá foreldrum Bryndísar sem og æskuvinkonum Bryndísar Klöru úr Salaskóla, en þær mættu í bleiku, uppáhaldslitnum hennar og lásu þessi orð sem þær skrifuðu:

,,Við viljum byrja á því að þakka ykkur öllum fyrir að koma til að sýna stuðning og minnast Bryndísar. Fyrir þá sem þekkja okkur ekki þá erum við æskuvinkonur Bryndísar. Flestir þekktu Bryndísi sem frekar feimna og kyrrláta stelpu. Hún kaus að vera ekki miðpunktur athyglinnar og  leið alltaf best með sínum nánustu. Við sem vorum bestu vinkonur hennar þekktum hana sem algjöra andstæðu. 

Þegar við hugsum um Bryndísi er það fyrsta sem okkur dettur í hug hvað hún var hress, skemmtileg, brosmild og góð manneskja en aðallega hvað hún var ótrúlega fyndin. Bryndís fékk rugluðustu hugmyndir í heimi, eitthvað sem engum öðrum myndi detta í hug eins og t.d. þegar hún mætti í afmæli búin að maka hveiti og matarlit framan í sig, þegar henni tókst að festa páfagaukinn sinn í ljósakrónu og þegar hún skrapaði af sér hálft andlitið í aparólunni í Salaskóla af því henni fannst það svo rosalega sniðugt að fara í hana á hvolfi.

Bryndís var mjög ástríðufull, þegar hún fann sér eitthvað sem hún elskaði þá ELSKAÐI hún það. Hvort sem það voru fjölskylda hennar og vinir eða eitthvað annað. Hún setti alltaf alla aðra í fyrsta sæti og var alltaf til staðar fyrir okkur. Hún var ótrúlega traust og góð vinkona og hún lífgaði alltaf upp á daginn með fallega brosinu sínu og sætu spékoppunum sínum. Við munum aldrei gleyma öllum stundunum sem við hlógum og skemmtum okkur oft langt fram á nótt. 

Elsku Bryndís okkar sem kvaddi þennan heim alltof snemma, það er svo mikið sem hún mun ekki fá að upplifa. Það er svo óraunverulegt að standa hér vitandi að það sé ekki hægt að tala við hana á morgun og segja henni frá öllu sem er að gerast í lífinu. 

Þó missir okkar allra sé mikill er missir Iðunnar og Birgis mestur og eitthvað sem ekkert foreldri ætti að þurfa að ganga í gegnum. Við hugsum líka til Vigdísar litlu sem hefur misst bestu stóru systur í heimi. Ekkert okkar skilur sorgina þeirra allra og hugur okkar er stöðugt hjá þeim.

Þetta hræðilega atvik sem átti sér stað hefur haft áhrif á alla. Bryndís er hetja og mun bjarga mörgum mannslífum í framtíðinni. Við þurfum öll að passa upp á að dauði Bryndísar verði til þess að það verði gert átak í málefnum barna og unglinga til þess að eitthvað þessu líkt gerist aldrei aftur. Verum góð hvert við annað og hjálpumst að að gera heiminn að stað sem leyfir þessu ekki að gerast. 

Þessi tími sem við höfðum elsku Bryndísi hjá okkur var ómetanlega dýrmætur og við munum aldrei gleyma henni. Við erum að eilífu þakklátar fyrir að hafa átt Bryndísi sem vinkonu og okkur þykir endalaust vænt um allar minningarnar sem við eigum saman. Það hefur ekki sekúnda liðið þar sem við hugsum ekki til þín en þótt þú sért farin munum við aldrei gleyma þér og þú munt alltaf lifa í hjarta okkar. Orð geta ekki lýst hversu mikið þín verður saknað.  Guð mun taka vel á móti þér uppi í himnaríki. Hvíldu í friði elsku Bryndís.“

Lokaorð minningarstundarinnar komu frá foreldrum Bryndísar Klöru, Iðunni og Birgi:

,,Okkur Iðunni þykir svo vænt um ykkur öll sem komið hér saman í dag, hlýhuginn og ástina til Bryndísar Klöru. Þið munuð verða ómetanleg sem riddarar, í minningu Bryndísar okkar, til að bæta heiminn og gera kærleikann að eina vopninu.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 3 dögum

Tveir stungnir í gistiskýli á Granda og annar þeirra rændur

Tveir stungnir í gistiskýli á Granda og annar þeirra rændur
Fréttir
Fyrir 3 dögum

„Bryndís Klara er dóttir mín. Hún var hjartahlýjasta og saklausasta mannveran sem hefur stigið á þessari jörð“

„Bryndís Klara er dóttir mín. Hún var hjartahlýjasta og saklausasta mannveran sem hefur stigið á þessari jörð“
Fréttir
Fyrir 4 dögum

Íbúum stendur ekki á sama um aukinn fjölda betlara í miðborginni – „Sitja dofin á götunum með betlispjöld, áreita vegfarendur og hlutir verið að hverfa“

Íbúum stendur ekki á sama um aukinn fjölda betlara í miðborginni – „Sitja dofin á götunum með betlispjöld, áreita vegfarendur og hlutir verið að hverfa“
Fréttir
Fyrir 4 dögum

Prís gerir góðlátlegt grín að keppinautunum – „Hún er krúttleg“

Prís gerir góðlátlegt grín að keppinautunum – „Hún er krúttleg“