fbpx
Þriðjudagur 03.september 2024
Fréttir

Bindindismenn höfðu sigur gegn Hafnarfirði og þremur stjórnarmönnum – Fá að eiga Gúttó áfram

Kristinn H. Guðnason
Þriðjudaginn 3. september 2024 10:30

Tekist hefur verið á um húsið sögufræga undanfarið ár.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Hæstiréttur hefur hafnað að taka fyrir mál sem varðar kvöð yfir Gúttó, góðtemplarahúsinu í Hafnarfirði. Bindindismenn (IOGT) unnu málið gegn fyrrverandi stjórn Hafnarfjarðardeildar félagsins og Hafnarfjarðarbæ. Eignarhald hússins hafði verið fært yfir til bæjarins án þess að leggja það fyrir landsstjórn IOGT.

DV greindi frá upphafi málsins í október á síðasta ári en þá hafði IOGT stefnt Hafnarfjarðarbæ, Sýslumanninum á höfuðborgarsvæðinu og þremur fyrrverandi stjórnarmönnum Hafnarfjarðardeildar IOGT. Þeim Jóni Kr. Jóhannessyni, Jóni Sigurbjörnssyni og Símoni Jóni Jóhannssyni.

Var það vegna þess að eignarhald á húsnæðinu að Suðurgötu 7, góðtemplarahúsinu sögufræga Gúttó, hafði verið fært yfir á Hafnarfjarðarbæ án þess að bera það undir landsstjórn samtakanna. Hafnarfjarðardeildin hafði svo verið lögð niður.

Gúttó, sem var byggt árið 1886, var áður frægur ball og samkomustaður en hefur einnig verið notað sem fundarstaður. Undanfarin ár hefur Hafnarfjarðarbær verið með húsið að láni fyrir sýningu byggðasafnsins og séð um rekstur og viðhald þess á meðan.

Aðalsteinn Gunnarsson framkvæmdastjóri IOGT var harðorður um gjörninginn.

Krafa IOGT var einfaldlega að gjörningurinn yrði tekinn til baka. „Núna virðist sem Hafnarfjörður sé orðinn eigandinn. Það þarf að breyta því aftur til baka. IOGT á þetta hús. Ekki einhverjir þrír einstaklingar eða Hafnarfjarðarbær,“ sagði Aðalsteinn Gunnarsson framkvæmdastjóri í viðtali við DV á sínum tíma. Fasteignamat hússins er um 70 milljónir en lóðin undir er mun verðmætari.

„Góðtemplarar í Hafnarfj“

Héraðsdómur Reykjaness hafnaði kröfu IOGT í mars síðastliðnum. Rök bæjarins og stjórnarmannanna voru þau að landssamtökin hefðu aldrei átt Gúttó. Þinglýstir eigendur væru „Góðtemplarar í Hafnarfj.“

Landsréttur sneri þessu hins vegar við í lok júní. Var ákvörðun sýslumannsins því hnekkt.

Sjá einnig:

Bindindismenn saka Hafnarfjarðarbæ um að taka af sér Gúttó – „Þetta virkar svolítið eins og frekja“

„Bera gögn málsins ekki með sér að augljóst hafi verið að virtum gögnum sem lágu fyrir sýslumanni að þar hafi verið um einn og sama aðila að ræða eða að „Góðtemplarar í Hafnarfj“ gætu talist vera sjálfstæður lögaðili frekar en deild eða félagsskapur innan sóknaraðila, svo  sem fullyrt var í fyrrgreindum texta kvaðarinnar,“ segir í dómi Landsréttar.

Ekki mikilsverðir almannahagsmunir

Hafnarfjarðarbær og stjórnarmennirnir þrír freistuðu þess að skjóta málinu til Hæstaréttar og báru fyrir sig að dómurinn hefði verið rangur og varðaði mikilsverða almannahagsmuni um þinglýsingar og ráðstöfun fasteigna.

En rétturinn hafnaði kæruleyfisbeiðninni, taldi kæruefnið ekki varða mikilsverða almannahagsmuni eða hafa fordæmisgildi og ekki væri ástæða til þess að ætla að dómur Landsréttar væri rangur.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Í gær

„Höfum brugðist fjölmörgum kynslóðum þar sem mörg hefðu getað átt tækifæri á miklu betra lífi“

„Höfum brugðist fjölmörgum kynslóðum þar sem mörg hefðu getað átt tækifæri á miklu betra lífi“
Fréttir
Í gær

Ákærður fyrir sérstaklega hættulega líkamsárás með bíl

Ákærður fyrir sérstaklega hættulega líkamsárás með bíl
Fréttir
Í gær

Úkraínumenn hafa fundið veikan punkt hjá Rússum og beina drónum sínum að honum

Úkraínumenn hafa fundið veikan punkt hjá Rússum og beina drónum sínum að honum
Fréttir
Í gær

Nýr biskup vígður – „Starfið í Þjóðkirkjunni er því eitt best geymda leyndarmálið á Íslandi“

Nýr biskup vígður – „Starfið í Þjóðkirkjunni er því eitt best geymda leyndarmálið á Íslandi“
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Ekkert verður af skiptum Osimhen

Ekkert verður af skiptum Osimhen
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Íbúum stendur ekki á sama um aukinn fjölda betlara í miðborginni – „Sitja dofin á götunum með betlispjöld, áreita vegfarendur og hlutir verið að hverfa“

Íbúum stendur ekki á sama um aukinn fjölda betlara í miðborginni – „Sitja dofin á götunum með betlispjöld, áreita vegfarendur og hlutir verið að hverfa“