Bíll hjónanna sem lentu í slysinu í Fossá á Skaga í gær var í tveggja metra djúpu vatni þegar viðbragðsaðilar komu að. Ekki er grunur um ölvunarakstur eða hraðakstur í málinu.
Greint er frá þessu í South China Morning Post. Blaðið greindi einnig frá því að hjónin sem lentu í slysinu væru frá Hong Kong. Þau hefðu verið lögreglumenn. Eiginmaðurinn, sem var á fertugsaldri, lést í slysinu en konan slasaðist og var flutt til aðhlynningar á Sjúkrahúsið á Akureyri. Engar frekari fréttir hafa borist af líðan hennar.
Segir í frétt blaðsins að hjónin hefðu verið að keyra eftir malarvegi og eiginmaðurinn var við stýrið. Hann hafi misst stjórnina á bílnum sem valt ofan í ánna. Enginn annar bíll var hluti af atburðarásinni.
Þegar viðbragðsaðilar komu á staðinn fundu þeir bílinn í tveggja metra djúpu vatni. Enginn hægðarleikur var því að ná fólkinu út úr bílnum.
Haft er eftir lögreglunni að bílaleigubíllinn sem hjónin höfðu á leigu hafi verið nýr. Lögreglan hafi engan grun um að maðurinn hafi verið ölvaður við akstur eða þá að hann hafi keyrt of hratt. Hámarkshraði á veginum er 80 kílómetrar á klukkustund.
Lögregluyfirvöld í Hong Kong hafa gefið út yfirlýsingu vegna málsins og vottað fjölskyldunni samúð. Greint er frá því hjá fréttamiðlinum Radio Television Hong Kong að lögreglan hafi boðist til að aðstoða fjölskylduna á hvaða hátt sem er. Þá hefur verið óskað eftir frekari upplýsingum um málið hjá sendiráði Kína á Íslandi.
„Deildin mun halda áfram að vera í sambandi við hlutaðeigandi aðila og fylgjast með framvindu þessa máls,“ segir í yfirlýsingunni.