Í fréttinni var fjallað vaxtahækkanir hjá bönkunum að undanförnu og þá staðreynd að fjármálakerfið fylgir stýrivöxtum Seðlabankans sem hafa verið 9,25% síðustu misseri.
Þegar stýrivextir voru lágir ákváðu margir lántakendur að taka óverðtryggt húsnæðislán til nokkurra ára. Þeir vextir hafa nú verið að losna og hækka samhliða hærri stýrivöxtum.
Helen benti á að hennar fjölskylda hafi byrjað á að greiða 180 þúsund í afborgun af húsnæðisláni sínu á mánuði. Þegar vextirnir á óverðtryggða láninu losnuðu hækkaði afborgunin upp í 440 þúsund krónur á mánuði. Fjölskyldan stækkaði svo við sig og þá var ekkert annað um að ræða en taka verðtryggt lán. „Þá þarf að skoða vextina en ofan á þá leggjast verðbætur. Það getur leitt til þess að lánið hækkar stöðugt þó að greitt sé af því,“ sagði Helen í frétt Stöðvar 2.
Sigmar Guðmundsson hefur látið sig þessi mál varða síðan hann fór inn á þing og segir hann á Facebook-síðu sinni að þetta sé enn eitt dæmið um áhrif rússíbanahagkerfisins á fjárhag fjölskyldna.
„Venjulegt fólk ræður ekki við þessar sveiflur. Sveiflunar eru skilgetið afkvæmi krónuhagkerfisins. Við þurfum stöðugra umhverfi með stærri gjaldmiðli.“