fbpx
Fimmtudagur 26.september 2024
Fréttir

Sævar Þór spyr hver ábyrgð Icelandair sé og segir samfélagið ekki græða neitt á slaufun

Ritstjórn DV
Þriðjudaginn 24. september 2024 14:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Sævar Þór Jónsson hæstaréttarlögmaður segir samfélag okkar búa við ákveðinn samfélagssáttmála um réttarríki þar sem þeir sem eru bornir sökum eiga rétt á að fá réttláta málsmeðferð fyrir hlutlausum dómi. 

Samfélagið þurfi því að spyrja sig áleitinna spurninga þegar kemur að kynferðisbrotamálum, og þá hvort einstaklingar teljist sekir þar til annað kemur í ljós. 

„Við þurfum að spyrja okkur áleitna spurninga hvar mörkin eiga að liggja þegar kemur að þessum málum. Þessu þurfa fyrirtæki eins og Icelandair einnig að spyrja sig að og koma hreint fram hvort þeir líti svo á að öfug sönnunarbyrði eigi að ráða þannig að menn séu sekir uns þeir sanni sakleysi sitt. Samræmist það þeim hugmyndum sem við höfum um réttarríkið?

Þeir eiga heimtingu á því að halda áfram með sitt líf séu þeir sýknaðir eða rannsókn leiðir til þess að ekki er talið sannað að brot hafi verið framið. Við getum ekki brotið þennan aldagamla samfélagssáttamála sem er til að vernda borgarana, einstaklingana, gegn ofríki,“

 segir Sævar Þór í grein sinni á Vísi. 

Sævar Þór setur grein sína í samhengi við mál Sólons Guðmundssonar, 28 ára gamals fyrrverandi flugmanns hjá Icelandair, sem svipti sig lífi í ágúst. Fjölskylda hans hefur farið fram á lögreglurannsókn á hvernig uppsögn hans bar að. Vilhjálmur Vilhjálmsson hæstaréttarlögmaður gætir að eigin sögn hagsmuna fimm kvenna sem greindu vinnuveitenda sínum, Icelandair, frá ofbeldi af hálfu Sólons gegn þeim og hefur ein þeirra kært hann fyrir nauðgun.

„Kynferðislegt ofbeldi er alvarleg meinsemd sem á ekki að viðgangast.  Hins vegar þarf að fara varlega þegar ásakanir eru bornar á einstaklinga sama hvers eðlis þær eru. Kynferðisbrot geta ekki verið þar undanskilin, slík mál þurfa faglega og vandaða úrvinnslu. Til þess höfum við réttarvörslukerfi,“ segir Sævar Þór.

Segir skjólstæðing sig ekki enn hafa náð sér eftir að vera vikið úr starfi vegna ásakana

Segist hann ekki þekkja til máls Sólons og því ekki geta fullyrt um atvik þess. Hins vegar segist Sævar Þór þekkja til fleiri svona mála innan Icelandair og rifjar upp mál manns sem hann vann fyrir, sem vikið var úr starfi hjá fyrirtækinu vegna ásakana, en mál gegn manninum var síðar fellt niður.

„Fyrir ekki margt löngu aðstoðaði ég mann, sem gegndi ábyrgðarstöðu hjá Icelandair, vegna ásakana sem bornar voru á hendur honum um kynferðisbrot. Brotið átti að hafa átt sér stað utan vinnutíma en gagnvart öðrum starfsmanni fyrirtækisins. Ásakanirnar leiddu til þess að umbjóðanda mínum var vikið úr starfi. Hann var lengi atvinnulaus sem hafði alvarlegar afleiðingar fyrir hann bæði fjárhagslega og andlega. Í viðræðum við Icelandair var lögð áhersla á meðalhóf í úrvinnslu málsins og lagt til að viðkomandi færi í leyfi meðan lögregla rannsakaði málið. Sú tillaga hlaut ekki brautargengi og missti umbjóðandinn vinnuna.

Eftir rannsókn málsins ákvað lögreglan að fella málið niður og var sú ákvörðun staðfest hjá Ríkissaksóknara. Þrátt fyrir að ósannað væri að umbjóðandi minn hafi gert nokkuð af sér þá var skaðinn skeður og hann átti ekki afturkvæmt í sambærilegt starf og hefur líf hans beðið skipsbrot. Það er alls óvíst hvort umbjóðandi minn muni nokkru sinni ná sér fjárhagslega eða andlega eftir þessa útreið,“

segir Sævar Þór.

„Það eitt að ásakanir eru bornar upp virðist duga til þess að víkja fólki úr starfi og virðist lögreglurannsókn eða hlutverk réttarvörslukerfisins engu skipta fyrir fyrirtækið.“ 

Einstaklingar eigi rétt á að svara fyrir sig

Segir hann að svo virðist sem stefna Icelandair í þessum málum sé svo ströng og ómanneskjuleg að það er ekkert svigrúm fyrir meðalhóf. Sævar Þór segir að það sé jákvætt að taka skýra afstöðu með þolendum kynferðisbrota og leyfa þeim að njóta vafans og það sé göfugt að stórfyrirtæki eins og Icelandair vilji taka samfélagslega ábyrgð. 

„En við getum ekki verið barnaleg í afstöðu okkar, við lifum ekki í veruleika sem er svartur og hvítur, – hann er alls konar. Þótt við tökum afstöðu með þolendum og sýnum þeim stuðning þá er ekki forsvaranlegt að sá sem borinn er sökum sé réttinda- og varnarlaus. Það er einhver meðalvegur þarna sem þarf að þræða.

Það er ekki hægt að líta fram hjá rétti einstaklings til að svara fyrir sig. Það er engum greiði gerður með því að byrja með offorsi og slaufa viðkomandi og jafnvel eyðileggja líf hans fyrirfram. Samfélagið græðir ekkert á því.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 13 klukkutímum

Drengurinn sem grunaður er um hnífstunguárásina á menningarnótt áfram í gæsluvarðhaldi

Drengurinn sem grunaður er um hnífstunguárásina á menningarnótt áfram í gæsluvarðhaldi
Fréttir
Fyrir 15 klukkutímum

Vinsælasti borgarfulltrúinn ætlar á þing

Vinsælasti borgarfulltrúinn ætlar á þing
Fréttir
Í gær

Tveir Íslendingar sagðir hafa svikið rúmlega hálfa milljón Bandaríkjadala út úr fyrirtæki í San Francisco

Tveir Íslendingar sagðir hafa svikið rúmlega hálfa milljón Bandaríkjadala út úr fyrirtæki í San Francisco
Fréttir
Í gær

Maðurinn sem lést í Hlauptungufossi var frá Katar

Maðurinn sem lést í Hlauptungufossi var frá Katar
Fréttir
Fyrir 2 dögum

„Í fyrsta skiptið í mínu lífi var ég meðhöndlaður eins og hundur“

„Í fyrsta skiptið í mínu lífi var ég meðhöndlaður eins og hundur“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Dópsali með fulla vasa af peningum sagðist hafa verið að selja vændi

Dópsali með fulla vasa af peningum sagðist hafa verið að selja vændi