Hópslagsmál áttu sér stað fyrir utan veitingastaðinn Café Catalína í Kópavogi á laugardagskvöld. Þrír erlendir menn komu og ollu usla en höfðu sig á brott áður en lögregla mætti á staðinn. Atvikið náðist á myndband.
Í myndbandinu sést mikill usli fyrir utan veitingastaðinn, sem stendur við austurenda Hamraborgar í miðbæ Kópavogs.
Dyravörður skerst í leikinn og sést hvernig einn af mönnunum kýlir til hans. Þá lætur dyravörðurinn til sín taka, kemur manninum í jörðina, lætur höggin dynja á honum, togar og skellir honum í jörðina. Hróp og köll heyrast, öll á erlendu tungumáli.
Málið kom inn á borð lögreglu. Gunnar Hilmarsson, aðalvarðstjóri á lögreglustöðinni í Kópavogi, segir að tilkynning hafi borist um klukkan 21:30 á laugardagskvöld.
„Það var tilkynnt um hóp af mönnum sem voru komnir þarna. Lögregla brást við en mennirnir voru farnir í burtu þegar lögreglu bar að,“ segir Gunnar.
Enginn var slasaður á staðnum þegar lögreglu bar að. Lögregla ræddi við dyraverði um málið en þeir sögðust ekki vita hverjir þessir menn væru.
„Það komu þarna þrír menn og eru með læti og einhver barefli sem þeir voru að veifa,“ segir Gunnar. „Síðan kemur til handalögmála og þeir fóru í burtu.“
Málið er núna í rannsókn hjá lögreglunni. Að sögn Gunnars er ekki vitað hvort mennirnir hafi átt eitthvað sökótt við gesti staðarins eða dyraverðina. Engin skýring er komin fram að svo stöddu.
„Það voru engin eignaspjöll, engar kröfur og enginn slasaður,“ segir Gunnar að lokum.