fbpx
Fimmtudagur 26.september 2024
Fréttir

Óreiðuástand þegar kona á Hólmavík vann í lottóinu um helgina

Ritstjórn DV
Föstudaginn 20. september 2024 13:51

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Kona á besta aldri datt í lukkupottinn um helgina þegar hún var ein með fyrsta vinninginn í lottóinu. Um var að ræða níu milljónir króna en óhætt er að segja að aðdragandinn og eftirleikurinn hafi verið með skrautlegra lagi, eins og fram kemur í tilkynningu Íslenskrar Getspár.

Þannig er mál með vexti að óvenju gestkvæmt var hjá konunni á Ströndum vegna smölunar og voru bæði börn og barnabörn í húsi.

„Þetta byrjaði reyndar allt samkvæmt vana þegar konan keypti miðann sinn í Krambúðinni en hún hefur verið fastheldin á hefðirnar gegnum árin og alltaf farið á sölustað og spilað með sömu tölurnar, sem eru afmælisdagar, brúðkaupsdagar og fleira sem tengist fjölskyldunni. Það fór því vel á því að svona margir fjölskyldumeðlimir væru á staðnum með konan fylgdist með útdrættinum á RÚV samkvæmt vana. Okkar konu varð þó um og ó þegar réttu tölurnar byrjuðu að birtast á skjánum og urðu taugarnar svo þandar að hún slökkti á sjónvarpinu áður en síðasta talan var dregin út.“

Í tilkynningu Íslenskrar getspár kemur fram að eftir þetta hafi tekið við óbærileg bið þar til sonur hennar gat fengið staðfestar upplýsingar um lokatölurnar á lotto.is. Brutust eðli málsins samkvæmt út mikil fagnaðarlæti hjá stórfjölskyldunni þegar ljóst varð að stóri vinningurinn kæmi allur á Hólmavík.

„Þegar fólk hafði áttað sig á góðu fréttunum tók við mikil rekistefna meðal viðstaddra um hvernig skyldi varðveita vinningsmiðann þannig að hann mundi örugglega ekki týnast. Hafði hver sína hugmynd en á endanum varð sú frumlega lausn ofan á að losa rafhlöðuna úr fartölvu sonarins og koma miðanum dýrmæta fyrir þar á á bak við og festa á ný. Syninum var síðan falið að koma þessari lukkutölvu til höfuðstöðva Íslenskrar getspár á mánudeginum og rækti hann það hlutverk með sóma, þótt móðirin hafi reyndar séð ástæðu til að hringja tvisvar þann morguninn til að tryggja að allt væri á áætlun. Það má því segja að það hafi tekist vel að smala fé til Hólmavíkur þessa réttarhelgina. Þess ber þó geta að Íslensk getspá mælir ekki með því að vinningsmiðar séu almennt geymdir í rafhlöðuhólfi fartölva þótt allt hafi farið að óskum í þetta sinn.“

Íslensk getspá óskar vinningshafanum innilega til hamingju og þakkar um leið veittan stuðning sem skiptir gríðarlega miklu máli fyrir fatlað fólk, sem og íþrótta- og ungmennafélögin í landinu þar sem þau njóta góðs af allri sölu Lottó.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 13 klukkutímum

Drengurinn sem grunaður er um hnífstunguárásina á menningarnótt áfram í gæsluvarðhaldi

Drengurinn sem grunaður er um hnífstunguárásina á menningarnótt áfram í gæsluvarðhaldi
Fréttir
Fyrir 15 klukkutímum

Vinsælasti borgarfulltrúinn ætlar á þing

Vinsælasti borgarfulltrúinn ætlar á þing
Fréttir
Í gær

Tveir Íslendingar sagðir hafa svikið rúmlega hálfa milljón Bandaríkjadala út úr fyrirtæki í San Francisco

Tveir Íslendingar sagðir hafa svikið rúmlega hálfa milljón Bandaríkjadala út úr fyrirtæki í San Francisco
Fréttir
Í gær

Maðurinn sem lést í Hlauptungufossi var frá Katar

Maðurinn sem lést í Hlauptungufossi var frá Katar
Fréttir
Fyrir 2 dögum

„Í fyrsta skiptið í mínu lífi var ég meðhöndlaður eins og hundur“

„Í fyrsta skiptið í mínu lífi var ég meðhöndlaður eins og hundur“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Dópsali með fulla vasa af peningum sagðist hafa verið að selja vændi

Dópsali með fulla vasa af peningum sagðist hafa verið að selja vændi