Íbúi birti færslu í íbúahópi Selfyssinga á Facebook á tíunda tímanum í gærkvöldi og beindi orðum sínum til foreldra í bænum.
„Ef þú átt strák ca 15-18 ára með áverka eftir kvöldið væri ráð að spjalla við hann og reyna að fá frekari upplýsingar. Þetta voru 4-5 strákar á móti einum. Nokkrir áhorfendur til hliðar.
Greinilega skipulagt því gerendur og áhorfendur földu andlit sín með grímum og hettum,“ sagði íbúinn og bætti við að um grimm slagsmál hafi verið að ræða sem leystust upp þegar vitni reyndu að stöðva þau.
Íbúinn segir að lögregla hafi verið kölluð til og kom hún á vettvang um það leyti sem hópurinn leystist upp. Hvetur íbúinn foreldra til að ræða við börn sín og segir viðkomandi:
„Þetta ástand og ofbeldi sem er í gangi í landinu er ekki í lagi! Þetta verður að stöðva strax!“
Þorsteinn M. Kristinsson, aðalvarðstjóri lögreglunnar á Suðurlandi, staðfestir í samtali við DV að málið sé komið inn á borð lögreglu og lögregla hafi verið kölluð á vettvang í gærkvöldi. Hann segir að lögregla hafi ekki náð að stíga inn í atburðarásina í gærkvöldi.
Þorsteinn segir að nú sé verið að rannsaka hvaða einstaklingar voru þarna að verki og að rannsókn málsins sé á frumstigi. Hann staðfestir einnig að einhver úr hópnum hafi þurft að leita sér aðhlynningar vegna áverka eftir fyrrnefnd slagsmál.
Málið hefur vakið talsverðar umræður í íbúahópi Selfyssinga og lýsa margir áhyggjum sínum af stöðu mála hér á landi. „Guð minn góður. Hvað er að gerast með börnin okkar? Þetta er ekki í lagi,“ segir til að mynda einn íbúi.