fbpx
Mánudagur 02.september 2024
Fréttir

„Að byrla og nauðga? Hvenær hætti ofbeldi að vera ofbeldi og varð að gríni sem fólk hlær að?“

Ragna Gestsdóttir
Mánudaginn 2. september 2024 14:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

„Við berum öll ábyrgð. Grín að nauðgunum, deilingar af skjáskotum á samfélagsmiðlum af hótunum um ofbeldi vegna fíkniefnaskulda eru normalíseraðar, ofbeldismennirnir sem vilja alltaf fá að „leiðrétta misskilninginn“ um að þeir séu ofbeldismenn og niðrandi tal um þolendur og femínísta eru allt hlutir sem ýta undir kynbundið ofbeldi. Það er enginn að hlæja lengur, núna er tíminn til að taka ábyrgð og hætta að gera lítið úr ofbeldi!“

segir Guðný S. Bjarnadóttir stjórnarformaður Hagsmunasamtaka brotaþola.

Segir hún fólk hissa yfir stöðunni í samfélaginu í dag þar sem kvenfyrirlitning finnst víða og ofbeldi er nær daglegt brauð. En þegar við köfum aðeins dýpra í menninguna okkar sjáum við að í raun hefur kynbundið ofbeldi verið efni í hvern grínþáttinn á fætur öðrum til lengri tíma. 

Guðný segir í grein sinni á Vísi að hún hafi frá því hún var lítil haft gaman að því að horfa á grínþætti. Fjölskyldan horfði saman á Spaugstofuna sem framan af var stærsta samansafn landsins af pabbabröndurum sem öll gátu hlegið að. 

„En síðan kárnar gamanið þegar horft er á síðari seríur og vitna ég í atriði frá árunum 2005-2006. Þar er Pálmi Gestsson í gervi Guðmundar í Byrginu, hann situr við tölvu og skrifar eftirfarandi: „Vaknaði í morgun og fékk mér kaffi og ristað brauð. Ætlaði að smyrja brauðið með smjöri en smurði það óvart með smjörsýru. Í kjölfarið var mér nauðgað fjórum sinnum. Ætlaði að kæra en sá að þetta hlaut að flokkast undir líknarstarf. Var nauðgað tvisvar í viðbót í kjölfarið. Misnotaði sjálfan mig í þágu Byrgisins í beinu framhaldi. Rifjaðist upp fyrir mér hvað þetta er bindandi starf. Framkvæmdi síðan nákvæma læknisskoðun á sjálfum mér með nýja GSM símanum og með þessu móti spara ég gífurlegan lækniskostnað. Hef hugsanlega óvart sent læknisskoðunina sem myndskilaboð.“

Rifjar Guðný upp mál Guðmundar í Byrginu sem dæmdur var í þriggja ára fangelsi árið 2008 fyrir kynferðisbrot í starfi. Átta konur kærðu hann en mál fjögurra voru felld niður. Þar af var ein þeirra undir lögaldri þegar brotin voru framin. 

„Þetta þótti efni í opnunaratriði Spaugstofunnar á sama tíma og málið var til meðferðar í réttarkerfinu okkar. Þetta mál var eitt það viðamesta sinnar tegunar á þeim tíma og án efa snerti við mörgum persónulega.

En hvar fórum við út af sporinu í gríninu og hvers vegna er þjáningar kvenna að finna þar? Meira að segja Fóstbræður gengu svo langt að leika senu þar sem körlum er kennt að beita konurnar sínar líkamlegu ofbeldi svo sjáist ekki á þeim. Helgi persónulegi trúbadorinn söng afsökunarbeiðni til konunnar sinnar fyrir að hafa rotað hana því hann missti stjórn á skapinu sínu. Í texta lagsins segir að nú sé honum runnin reiðin og þegar þátturinn er búinn ætlar hann að koma í Kvennaathvarfið og ná í hana.“

Guðný rifjar einnig upp viðtal við Jón Gnarr sem eins frambjóðenda til embættis Forseta Íslands þar sem hann var spurður meðal annars út í lag Tvíhöfða þar sem hann söng „En ég er kominn að skemmta mér, ég vona að enginn nauðgi mér, já ég er kominn að skemmta mér, á ég kannski að nauðga þér?“

„Jón hló þegar hann hlustaði á upptökuna og sagði engan ásetning hafa verið á bak við orðin. En hvað er svona fyndið við þetta? Það virðist vera mjög íslenskt fyrirbæri í nútíma menningu að syngja um ofbeldi gegn konum og sýna það jafnvel í myndböndum á borð við Flagarann með Steinda Jr. Þar byrlar hann Siggu Kling og fer heim með hana til að nauðga henni. Er það líka fyndið? Að byrla og nauðga? Hvenær hætti ofbeldi að vera ofbeldi og varð að gríni sem fólk hlær að? Húmor verður að orðræðu. Orðræða verður að menningu.“

Samfélagsmiðlar gegnsósa af kvenfyrirlitningu og ofbeldi

Guðný segir orðræðu um ofbeldi gegn konum allt í kring um okkur og hana hafa færst okkur mun nær eftir því sem árin líða. 

„Áður fyrr var þetta í línulegri dagskrá og í útvarpinu. Ungmenni í dag hafa ekki einungis mörg hver alist upp við óminn af fyrrgreindum þáttum og lögum. Þau fá beint í æð á TikTok og öðrum samfélagsmiðlum fyrirmyndirnar sínar tala um neyslusögur og ofbeldi sem hefur verið sett í glansbúning. Þetta geta þau hlustað og horft á allan sólarhringinn, alla daga.“

Guðný segir samfélagsmiðla vera gegnsósa af kvenfyrirlitningu og ofbeldi og spyr hvar ábyrgðin liggi.

„Var með eina tvítuga í læstri hliðarlegu á áfangaheimili í gærkvöldi í gömlum leðursófa yndislegt kvöld #þakklátur“. „Náði í mína í Konukoti þær eru game í allt“.

Brotið kerfi sem hvorki fyrirbyggir ofbeldi né dregur menn til ábyrgðar

Guðný segir samfélagið allt hafa samfélagslegri ábyrgð að mæta, bæði í orði og í verki. 

„Við getum valið að gefa ekki fólki sem viðheldur kvenfyrirlitningu og upphefur neyslu og ofbeldi raddir í samfélaginu okkar. Við getum valið að sniðganga þau sem tala niður til þolenda og þau sem horfast ekki í augu við það að ofbeldið er ekki innfluttur vandi heldur spyr hvorki um aldur, stétt né uppruna. Við getum þrýst á yfirvöldin okkar til að auka fjármagn til fræðslu ungmenna og efla löggæslu í landinu. Við getum þrýst á yfirvöldin til að auka fjármagn til heilbrigðiskerfisins sem á að grípa börnin okkar áður en þau missa tökin.

Það er skammarlegt að á meðan ríkisstjórnin skerðir fjárframlag til grunnþjónustu borgara og átök lögreglunnar gegn ofbeldi snúast um það að spyrja náungann hvort sé allt í góðu, eru börn að bera vopn og ofbeldi sjaldan verið jafn sýnilegt og algengt sem nú. Við erum með brotið kerfi sem hvorki tekst að fyrirbyggja ofbeldi né draga ofbeldismenn til ábyrgðar þannig að nei, það er ekki allt í góðu!“

Grein Guðnýjar má lesa í heild sinni hér.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 2 dögum

Ekkert verður af skiptum Osimhen

Ekkert verður af skiptum Osimhen
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Íbúum stendur ekki á sama um aukinn fjölda betlara í miðborginni – „Sitja dofin á götunum með betlispjöld, áreita vegfarendur og hlutir verið að hverfa“

Íbúum stendur ekki á sama um aukinn fjölda betlara í miðborginni – „Sitja dofin á götunum með betlispjöld, áreita vegfarendur og hlutir verið að hverfa“
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Hættuleg umferðarljós í Langholtshverfi vekja reiði íbúa – „Það munaði svo litlu að keyrt væri yfir hana“

Hættuleg umferðarljós í Langholtshverfi vekja reiði íbúa – „Það munaði svo litlu að keyrt væri yfir hana“
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Banaslys í Garðabæ

Banaslys í Garðabæ
Fréttir
Fyrir 4 dögum

Meintur raðnauðgari ákærður fyrir brot gegn fjórum konum – Nýtti sér að þær gátu ekki spornað við ofbeldinu og tók háttsemina upp

Meintur raðnauðgari ákærður fyrir brot gegn fjórum konum – Nýtti sér að þær gátu ekki spornað við ofbeldinu og tók háttsemina upp
Fréttir
Fyrir 4 dögum

Yfirlýsing frá Ice Pic Journeys – Harma mjög banaslysið

Yfirlýsing frá Ice Pic Journeys – Harma mjög banaslysið