Græni póstdagurinn er haldinn hátíðlegur í dag í sjötta sinn, en hann er í miðri Evrópsku samgönguvikunni 16.-22. september. „Markmið dagsins er að vekja athygli á mikilvægi sjálfbærrar póstþjónustu og hvernig samvinna póstfyrirtækja er lykillinn að árangri þeirra í loftslagsmálum,“ segir Ásdís Káradóttir, sjálfbærnistjóri Póstsins í tilkynningu.
Alþjóðasamtök póstfyrirtækja (IPC) standa að Græna póstdeginum og í ár er sjónum beint að samvinnu fyrirtækjanna og hvernig hún skilar áþreifanlegum árangri. „Póstfyrirtækin hafa komið sér saman um tiltekin áherslusvið og aðferðafræði í sjálfbærni og sett sér sameiginleg markmið um samdrátt í losun til 2030 undir merkjum IPC SMMS (Sustainability Measurement and Management System).
Pósturinn tekur virkan þátt samstarfinu ásamt póstfyrirtækjum um allan heim, sem saman vinna að því að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda í flutningum.Síðan samstarfið var sett á laggirnar árið 2008 hafa fyrirtækin sameiginlega dregið úr losun af starfsemi sinni um meira en þriðjung í umfangi 1 og 2. Pósturinn gerðist þátttakandi 2023 og leggur sitt af mörkum með orkuskiptum bílaflotans og snjöllum lausnum í flutningum.“
Í fyrra fjárfesti Pósturinn í tveimur rafmagnsflutningabílum frá Volvo, þeim fyrstu sinnar tegundar hér á landi. Ásdís segir að í ár beri helst til tíðinda hjá Póstinum að fimm af stærstu flutningabílum fyrirtækisins gangi nú alfarið fyrir HVO100-eldsneyti í stað hefðbundinnar dísilolíu. HVO100 er framleitt úr endurunninni jurtaolíu og lífrænum úrgangsefnum og með notkun hennar dregur úr losun koltvísýrings um 90%. „Við sjáum þegar vísbendingar um að kolefnisfótspor af starfsemi fyrirtækisins sé að dragast saman vegna þessa og munum gera grein fyrir því í næstu ársskýrslu, þegar öll kurl verða komin til grafar,“ segir Ásdís.