Greint er frá andláti Benedikts í Morgunblaðinu í dag.
Benedikt útskrifaðist frá MR árið 1958 og lauk embættisprófi í lögfræði frá Háskóla Íslands árið 1964. Þá nam hann viðskiptafræði í Bandaríkjunum og var hæstaréttarlögmaður frá 1969.
Hann stundaði lögmennsku ásamt skipasölu um árabil og var einn helsti forystumaðurinn í íslensku atvinnulífi um áratugaskeið. Hann sat í stjórnum margra fyrirtækja þar sem hann var iðulega stjórnarformaður, til dæmis Sjóvá, síðar Sjóvá-Almennar, Eimskip, Burðarás, Flugleiðir, Marel, SR mjöl, Granda og Nesskip.
Benedikt bjó í Garðabæ frá árinu 1966 og var áberandi í uppbyggingu þar. Hann var bæjarfulltrúi frá 1986 til 1998 og formaður bæjarráðs í tíu ár. Þá spilaði hann fótbolta með Val og var síðar ötull stuðningsmaður Stjörnunnar þar sem hann var sæmdur gullmerki félagsins.
Eftirlifandi eiginkona Benedikts er Guðríður Jónsdóttir og varð þeim þriggja sona auðið. Auk Bjarna eignuðust þau Svein sem er tölvunarfræðingur, og Jón sem er rafmagnsverkfræðingur. Barnabörn þeirra eru átta og barnabarnabörn fjögur.