fbpx
Laugardagur 14.september 2024
Fréttir

Lilja veltir fyrir sér hvað hefði gerst ef kviknað hefði í rútunni fyrr – „Það hefði orðið algjört öngþveiti“

Ritstjórn DV
Föstudaginn 13. september 2024 21:36

Mynd: Skjáskot RÚV

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Rúta gjöreyðilagðist í eldsvoða í Tungudal í Skutulsfirði í dag. RÚV greindi frá, sem og Lögreglan á Vestfjörðum.

Allir farþegarnir, sem voru tæplega sextíu, komust úr úr rútunni heilir á húfi og voru fluttir af vettvangi með annarri rútu. Atvikið átti sér stað síðdegis í dag, skömmu eftir að rútan kom út úr Vestfjarðargöngunum. Í frétt mbl.is um málið er velt vöngum yfir því hvað hefði gerst ef kviknaði hefði í rútunni inni í göngunum. „Þetta byrj­ar á að hreinsa út allt súr­efni og svo skil­ar það þess­um reyk til baka þannig að þetta fólk sem var í rút­unni og aðrir veg­far­end­ur, þar á meðal ég, væru all­ir í veru­legri hættu ef að þetta hefði gerst ekki nema þá bara einni mín­útu áður,“ segir sjónarvottur í viðtali við mbl.is.

Lilja Rafney Magnúsdóttir, varaþingmaður VG, kom á vettvang rútubrunans. Hún segir atvikið kalla á nauðsyn þess að tvöfalda báðar einbreiðu brautirnar sem liggja í gengum göngin. Lilja fer yfir málið á Facebook-síðu sinni:

„Gott að ekki urðu slys á fólki. Ég kom út úr göngunum stuttu eftir að slysið gerðist og var þá komin stór bílaröð hjá slysstað. Svona atburðir ættu að vekja ráðamenn til umhugsunar um hvað hefði getað gerts ef kviknað hefði í rútunni nokkrum mínutum fyrr inn í Vestfjarðargöngum sem eru einbreið að stórum hluta og mikil rútutraffic um báða einbreiðu leggina ! Það hefði orðið algört öngþveyti og erfitt að komast að slysstað til bjargar og baneitraður reykur frá eldinum. Vonandi vekur þetta ráðamenn til vitundar um nauðsyn þess að tvöfalda þessi báða leggi einbreiðu ganganna sem fyrst því þar er mikil slysahætta og gera þarf viðeigandi ráðstafanir. Hverjar eru viðbragðsáætlanir ef eldsvoði verður í umferðinni í göngunum ég vona að nú þegar sé einhver til staðar en þessi atburður kallar á mikla skoðun svo tryggja megi öryggi vegfarenda!“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Í gær

Sólveig Anna ómyrk í máli og hjólar í Elvar: „Hefur fyrir vana að ráða fólk í vinnu en greiða þeim ekki laun“

Sólveig Anna ómyrk í máli og hjólar í Elvar: „Hefur fyrir vana að ráða fólk í vinnu en greiða þeim ekki laun“
Fréttir
Í gær

Hraun gæti náð Reykjanesbraut á innan við einum degi – „Vísbendingar um að virknin sé að færast“

Hraun gæti náð Reykjanesbraut á innan við einum degi – „Vísbendingar um að virknin sé að færast“
Fréttir
Í gær

Segja sviðna jörð liggja eftir veitingamanninn Elvar – Mótmæla launaþjófnaði fyrir framan veitingahúsið Ítalíu

Segja sviðna jörð liggja eftir veitingamanninn Elvar – Mótmæla launaþjófnaði fyrir framan veitingahúsið Ítalíu
Fréttir
Í gær

Íranar hunsa aðvaranir Vesturlanda – Sendu Rússum flugskeyti

Íranar hunsa aðvaranir Vesturlanda – Sendu Rússum flugskeyti
Fréttir
Í gær

Dreginn fyrir dóm vegna nauðgunar árið 2015

Dreginn fyrir dóm vegna nauðgunar árið 2015
Fréttir
Í gær

Bæjarstjóri Reykjanesbæjar í veikindaleyfi

Bæjarstjóri Reykjanesbæjar í veikindaleyfi
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Stefán segir sárt að horfa upp á þetta: „Flestir leiðsögumennirnir eru útlenskir krakkar“

Stefán segir sárt að horfa upp á þetta: „Flestir leiðsögumennirnir eru útlenskir krakkar“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Viðskiptaráð vill veðmálin heim og segir til mikils að vinna fyrir ríkissjóð

Viðskiptaráð vill veðmálin heim og segir til mikils að vinna fyrir ríkissjóð