Björn gerir þar uppgjör Festar, sem á meðal annars Krónuna og N1, að umtalsefni en í síðustu viku var greint frá því að hagnaður félagsins hefði aukist um 78,5% á fyrstu sex mánuðum þessa árs miðað við sama tímabil í fyrra.
„Samfélagsmiðlar tóku við sér og hneyksluðust hressilega á þessari græðgi á meðan fólk glímir við háa vexti á lánum og háa verðbólgu. Skiljanlega – því 78,5% hækkun á gróða á milli ára lítur út fyrir að vera ansi hressileg hækkun,“ segir Björn sem ákvað að skoða málið nánar.
Í fréttum var greint frá því að hagnaðurinn fyrstu sex mánuði ársins hafi numið 1,2 milljörðum en á sama tíma í fyrra var hann 647 milljónir. Björn segir að það sé vissulega ansi há upphæð á alla mælikvarða og bendir á að það sé álíka mikið og var sett í framkvæmdasjóð ferðamannastaða allt árið í fyrra.
„78,5% hækkun. 550 milljónum meira. Græðgi, er það ekki? Hinkrum aðeins við, þetta er ekki öll sagan,“ segir Björn sem vísar í frétt mbl.is af uppgjörinu þar sem fram kom að vörusala hafi numið 36 milljörðum króna en nam 34 milljörðum árið áður – aukning upp á 5,4% á milli ára.
„1,2 milljarðar í hagnað af 36 milljarða króna vörusölu er 3,3% hagnaður. Verðbólgan er 6,33%. Matur og drykkjarvörur hafa hækkað um 6,24% þar sem vöruflokkarnir sem hafa hækkað mest eru kjötvörur. Nautakjöt og svínakjöt hefur hækkað um rétt rúmlega 8% á meðan lambakjöt hefur hækkað um heil 18,35%. Kartöflur hafa hækkað um rúmlega 21%, sælgæti um rúmlega 10% og súkkulaði um tæplega 16%,“ segir Björn og bendir á að verðbólgan sé lúmsk, sérstaklega þegar hún er búin að vera há í langan tíma.
„Við þurfum stöðugt að uppfæra verðvitund okkar í samanburði við ráðstöfunartekjur. Ef við vorum áður að borga 25% af ráðstöfunartekjum okkar í húsnæði og borgum nú 100 þúsund krónum meira út af verðbólgunni eða háum stýrivöxtum – þá segir það okkur í rauninni ekkert nema við skoðum hlutfallið af ráðstöfunartekjum. Við gætum vel verið að borga fleiri, en verðlausari, krónur. Við gætum þess vegna verið að borga minna hlutfall af ráðstöfunartekjum okkar í dag en fyrir fimm árum í húsnæði. Staðan í dag er að ársbreyting launa er 6%. Lægri en verðbólga – sem þýðir að að jafnaði eru ráðstöfunartekjur okkar að rýrna,“ segir Björn í grein sinni og spyr síðan:
„Miðað við allt þetta, er 78,5% aukning á hagnaði – 550 fleiri milljónir – græðgi? Miðað við að þetta eru bara 3,3% af heildinni og helstu sökudólga verðbólgunnar er að finna annars staðar, þá er erfitt að fullyrða að svo sé. En 78,5% hækkun lítur illa út. Það er auðvelt að hoppa á græðgisvagninn gagnvart svona tölum. Þarna eru vissulega hækkanir, en ég myndi segja að þær væru innan óvissuvikmarka þess að hægt sé að ásaka fólk um græðgi. Tölfræðin villir stundum fyrir í svona dæmum – sem er ekki hjálplegt fyrir umræðuna.“