Skriðuvakt Veðurstofu Íslands hefur sent frá sér viðvörum um auknar líkur á skriðuföllum á frídegi verslunarmanna, mánudaginn 5. ágúst. Í tilkynningunni kemur fram að vegna úrkomu sé mikilvægt að vegfarendur sýni aðgát þegar ferðast er undir bröttum hlíðum, horfi í kringum sig og forðist að dveljast lengi innan farvega. Þá sé vert að hafa í huga að skriður geti fallið skyndilega, líka eftir að mesta ákefð rigningar er búin.
Í tilkynningunni kemur fram að nýleg spá gerir ráð fyrir að úrkomubakki komi að Austfjörðum seint á sunnudagskvöld 4. ágúst. Úrkoman teygir sig frá Borgafirði eystri alla leið að Öræfum með úrkomuákefð sem gæti náð 10 mm á klst., með meiri ákefð efst til fjalla.
Á mánudaginn, 5. ágúst, fylgir svo annar úrkomubakki síðdegis með meiri ákefð bæði til fjalla og á láglendi. Það bætist töluverð úrkoma við á stuttum tíma á þessi svæði, ef veðurspá gengur eftir.
Austfirðir bætast við þau svæði sem nú þegar hefur verið varað við auknum líkum á skriðuföllum, en áður hafði verið varað við svipaðri hættu á Suðurlandi og Ströndum Uppsöfnuð úrkoma á þessum svæðum er há, með yfir 200 mm á Ströndum frá kl. 12 í dag, 3. ágúst, til þriðjudags 6. águst. Þá eru 430 mm á Mýrdalsjökli, 730 mm á Öræfum og víða yfir 130 mm til fjalla á Austfjörðum. Þar sem það hefur rignt mikið undanfarið má gera ráð fyrir að jarðvegur sé víða vatnsmettaður. Skriða hefur nú þegar fallið á veg í Árneshrepp, í gær 2. ágúst, og er von á að það sama geti gerst á áðurnefndum svæðum.
Þegar það rignir mikið í fjöllunum má búast við vatnavöxtum í ám og lækjum og gætu farvegsbundnar aurskriður farið af stað. Auk þess geta jarðvegsskriður fallið þegar jarðvegur er vatnsmettaður. Grjóthrun getur líka átt sér stað þegar vatn losar um grjót í klettum og bergveggjum.
Til að halda utan um skriðuaðstæður í landinu er mikilvægt að tilkynna skiðuföll til Skriðuvaktar Veðurstofunnar sem geta svo metið aðstæður á ný. Það er hægt að hafa samband í síma 522-6000 eða nota skráningarform á vef Veðurstofunnar sem finna má undir „Tilkynna snjóflóð“ bæði á snjóflóðaforsíðu og eins undir Ofanflóð (listi t.v.) en þetta vefform dugar jafnt til skráninga á skriðuföllum og snjóflóðum. Gott er að hafa mynd af skriðum og nákvæma staðsetningu auk tímasetningu, hvenær skriða fór eða hvenær fólk varð vart við skriðu.