fbpx
Fimmtudagur 29.ágúst 2024
Fréttir

Salman Rushdie á leið til Íslands

Ritstjórn DV
Fimmtudaginn 29. ágúst 2024 07:22

Salman Rushdie Mynd/Getty

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Rithöfundurinn Salman Rushdie er á leið til Íslands en hann hlýtur í ár alþjóðleg bókmenntaverðlaun Halldórs Laxness. Bjarni Benediktsson forsætisráðherra mun afhenda honum verðlaunin í Háskólabíói föstudaginn 13. september næstkomandi.

Í fréttatilkynningu frá Bókmenntahátíð kemur fram að verðlaunin séu veitt annað hvert ár alþjóðlega þekktum rithöfundi fyrir að eiga þátt í endurnýjun frásagnarlistarinnar en þannig hljómaði einmitt rökstuðningur sænsku Akademíunnar þegar Halldór Laxness hlaut Nóbelsverðlaunin í bókmenntum árið 1955.

„Verðlaununum er líka ætlað að halda á lofti nafni Halldórs Laxness á alþjóðlegum vettvangi. Að þeim standa Alþjóðlega bókmenntahátíðin í Reykjavík, forsætisráðuneytið, menningar- og viðskiptaráðuneytið, Íslandsstofa, Gljúfrasteinn og Forlagið, útgefandi Halldórs Laxness á Íslandi. Háskóli Íslands er samstarfsaðili Alþjóðlegu bókmenntaverðlauna Halldórs Laxness 2024,“ segir í tilkynningunni.

Verðlaunin voru fyrst afhent árið 2019 þegar breski rithöfundurinn Ian McEwan veitti þeim viðtöku. Tveimur árum seinna hlaut tyrkneski höfundurinn Elif Shafak verðlaunin og árið 2022 hlotnuðust þau úkraínska höfundinum Andrei Kúrkov.

Sem fyrr segir hlýtur verðlaunin í ár rithöfundurinn Salman Rushdie. Hann mun veita þeim viðtöku föstudaginn 13. september. Venju samkvæmt mun forsætisráðherra afhenda Rushdie verðlaunin, sem eru peningaverðlaun að upphæð 15.000 evrum með verðlaunapeningi að auki. Halla Oddný Magnúsdóttir og Halldór Guðmundsson munu svo leiða samræður við Rushdie á sviði eftir afhendinguna.

Ömurlegt að missa auga: „Ég er miður mín alla daga út af því“

Í rökstuðningi valnefndar segir meðal annars að skáldsögur Salmans Rushdies séu heillandi, heimspekilegar og upplýsandi sögur fyrir lesendur sem eru tilbúnir að uppgötva nýja heima. Fyrir lesendur um heim allan hafi ímyndin um Rushdie, sem í meira en þrjátíu ár hefur haldið áfram að skrifa skáldsögur sínar þrátt fyrir dauðadóm klerkastjórnarinnar í Íran, í framhaldi af útgáfu verksins Söngvar Satans, og banatilræðið sem honum var sýnt í Bandaríkjunum fyrir tveimur árum, orðið að táknmynd hugrekkis og óbeygjanlegs vilja. Bókin Hnífur, þar sem Rushdie lýsir banatilræðinu og afleiðingum þess, kemur út á íslensku hjá Forlaginu í þýðingu Árna Óskarssonar af þessu tilefni.

Verðlaunaathöfnin og dagskráin með Salman Rushdie verður í Háskólabíó föstudaginn 13. september og hefst hún klukkan 17:30. Öll eru velkomin og það er enginn aðgangseyrir, en nauðsynlegt er að skrá sig fyrir miðum í gegnum miðasöluvefinn Tix.is. Bóksala verður á staðnum þar sem hægt verður að kaupa nýju bókina, Hníf, áritaða af höfundi.

Í valnefnd Alþjóðlegra bókmenntaverðlauna Halldórs Laxness árið 2024 eru úkraínski rithöfundurinn Andrei Kúrkov, sem hlaut verðlaunin árið 2022, Egill Helgason fjölmiðlamaður og Stella Soffía Jóhannesdóttir, framkvæmdastjóri Alþjóðlegu bókmenntahátíðarinnar í Reykjavík.

Um Salman Rushdie

Salman Rushdie hefur sent frá fimmtán skáldsögur. Á meðal þeirra eru Miðnæturbörn, (sem hlaut Booker-verðlaunin og var valin besta Booker-verðlaunabók allra tíma) og Söngvar Satans. Fimm skáldsögur Rushdies hafa verið á stuttlista Booker-verðlaunanna. Rushdie hefur einnig sent frá sér sjálfsævisöguleg verk, ritgerðasöfn og smásögur.

Salman Rushdie hefur unnið til fjölda verðlauna fyrir verk sín sem hafa verið þýdd á meira en fjörutíu tungumál. Árið 2023 var hann á lista tímaritsins Time yfir hundrað áhrifamestu manneskjur ársins.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 23 klukkutímum

Mikið slasaður eftir umferðarslys á laugardag – Lögregla óskar eftir vitnum

Mikið slasaður eftir umferðarslys á laugardag – Lögregla óskar eftir vitnum
Fréttir
Í gær

Anton fann fyrir nýrri tegund af þreytu eftir fyrsta vinnudaginn – Eftir 25 ár segir hann starfið einnig gefandi og skemmtilegt

Anton fann fyrir nýrri tegund af þreytu eftir fyrsta vinnudaginn – Eftir 25 ár segir hann starfið einnig gefandi og skemmtilegt
Fréttir
Í gær

Líkfundur í fjörunni á Álftanesi

Líkfundur í fjörunni á Álftanesi
Fréttir
Í gær

Litlu mátti muna þegar eldri kona missti meðvitund í Silfru

Litlu mátti muna þegar eldri kona missti meðvitund í Silfru