fbpx
Mánudagur 26.ágúst 2024
Fréttir

Segir breyttar ferðavenjur losa um umferðarhnúta – „Að setjast aldrei aftur í bíl er hugsun sem flestir Íslendingar eiga erfitt með“

Ragna Gestsdóttir
Mánudaginn 26. ágúst 2024 16:07

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Sigurður Ingi Friðleifsson segir breyttar ferðavenjur einfaldlega langódýrastu og skynsamlegustu leiðina til að takast á við fjölþætt samfélags vandamál eins og umferðarteppur, mengun, olíubrennslu og lýðsheilsu. Breyttar ferðavenjur er í raun samheiti lausna sem minnka bílnotkun. 

Sigurður sem starfar sem sviðsstjóri Orkuskipta og loftslagsmála hjá Orkustofnun segir að breyttar ferðavenjur þurfi ekki alltaf að þýða algerlega bíllaus lífstíll því að bílminni lífstíll getur líka haft veruleg áhrif. 

Í grein sinni á Vísi segir Sigurður að „vissulega næst mestur árangur ef einhverjir losa sig alveg við bílinn en heildarárangur getur orðið miklu meiri ef hundrað þúsund manns nota bílinn minna. Að setjast aldrei aftur í bíl er hugsun sem flestir Íslendingar eiga erfitt með en að hjóla öðru hvoru eða vinna heima dag og dag er kannski eitthvað sem fleiri gætu tileinkað sér. Ekkert leysir umferðahnúta hraðar eða ódýrar en breyttar ferðavenjur.“

Telur Sigurður upp 7 atriði sem losa umferðarhnúta, eða eins og hann segir „lista af framförum á undanförnum árum sem ættu að auðvelda fólki að taka upp bílminni lífstíl.“

Atriðin 7 eru: 

1 Rafhjól

Tilkoma rafhjóla er ein merkilegasta samgöngubylting sögunnar. Lengi hefur verið ljóst að reiðhjól er orkunýtnasti ferðamáti sem til er. Líkamleg áreynsla, brekkur, mótvindur og vegalengdir hefur þó haldið aftur af stórtækri útbreiðslu hjólreiða. Tilkoma rafhjóla er alger leikbreytir sem minnkar líkamlega áreynslu, tekur út leiðinda erfiði í brekkum og mótvindi og gerir fólki kleyft að fara mun lengri ferðir án örmögnunar. Rafhjól gera hjólreiðar einfaldalega auðveldari.

2 Heimavinna

Tölvutæknin og reynslan frá Covid sýndu að stór hluti vinnuafls getur að hluta til unnið heima. Ef starfsmenn fyrirtækis, sem annars kæmu á bíl til vinnu, tækju bara einn heimavinnudag í viku myndi umferð til og frá vinnustaðnum minnka um 20%. Með tækninýjungum hefur heimavinna skrifstofufólks aldrei verið auðveldari.

3 Rafskútur

Tilkoma rafskútna hefur komið með nýjan vinkil inn í samgöngur. Rafskútur eru afar notendavæn leið til að komast á milli staða og létta verulega á bílaumferð. Akstur á leigðum rafhlaupahjólum er í kringum þrjár milljónir ferða á ári og ef stór hluti þeirra ferða hefði verið mætt með einkabíl er ljóst að umferðateppur væru enn verri. Rafskútur gera breyttar ferðavenjur auðveldari.

4 Heimsendingar

Ein afsökunum fyrir ofnotkun einkabíla hefur oft verið að erfitt er að flytja vörur á hjóli eða gangandi þegar verslað er. Nú hefur netverslun breytt leiknum og hægt er að fá allt heim að dyrum eða í næsta pósthólf. Meira að segja bjóða nú matvöruverslanir heimsendingu á rafsendibílum. Þetta minnkar umferð þar sem sendibíllinn sameinar ferðir sem annars væru farnar á mun fleiri einkabílum. Heimsendingar gera þannig bílminni lífstíl auðveldari.

5 Innviðir

Hjóla- gönguinnviðir hafa batnað mikið á undanförnum árum. Heilmikið af göngu- og hjólreiðastígum hafa verið lagðir sem auðvelda mjög fólki að nýta breyttar ferðavenjur.

6 Klæðnaður

Veðrið er versti óvinur breyttra ferðavenja nema auðvitað heimavinnu. Gæði og fjölbreytileiki útivistarfatnaðar hefur aukist mikið undanfarin ár og nú er mun auðveldara og þægilegra að klæða af sér veðrið. Betri útivistarfatnaður auðveldar göngu- og hjólreiðafólki að takast á við veðrið.

7 Korter

Korter er íslenskt app sem gerir allt mat á göngu- og hjólreiðavegalengdum auðveldari. Appið er einfaldlega opnað og hægt að sjá strax hvort áfangastaður sé innan seilingar innan korters gangandi eða hjólandi.

„Eins og listinn sýnir er mun auðveldara en áður að tileinka sér breyttar ferðavenjur. Ef hluti borgarbúa tekur upp hluta af þessum lausnum öðru hvoru þá minnkar umferðarþungi strax. Engin önnur lausn gegn umferðateppum höfuðborgarsvæðisins er jafn hraðvirk og ódýr. Breyttar ferðavenjur þurfa ekki kostnaðarsamar og flóknar stórframkvæmdir heldur geta liðkað fyrir umferð núna.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 11 klukkutímum

Móðir á hækjum þurfti að skutla dóttur sinni í skólann – Fær ekki akstur því hún er „óstaðsett í hús“

Móðir á hækjum þurfti að skutla dóttur sinni í skólann – Fær ekki akstur því hún er „óstaðsett í hús“
Fréttir
Fyrir 11 klukkutímum

Ævar Þór þungt hugsi: „Ég er ekki viss um að nokkur skilji“

Ævar Þór þungt hugsi: „Ég er ekki viss um að nokkur skilji“
Fréttir
Fyrir 21 klukkutímum

Einn látinn eftir slysið við Breiðamerkurjökul

Einn látinn eftir slysið við Breiðamerkurjökul
Fréttir
Fyrir 23 klukkutímum

Alvarleg líkamsárás í miðborginni – 16 ára drengur úrskurðaður í gæsluvarðhald

Alvarleg líkamsárás í miðborginni – 16 ára drengur úrskurðaður í gæsluvarðhald