Eldur kom upp í skemmu í Hoftúni norðan Stokkseyrar og stendur slökkvistarf þar yfir.
Útkall barst upp úr fimm í dag og var allt tiltækt lið Brunavarna Árnessýslu frá Selfossi og Þorlákshöfn sent á staðinn.
Mbl.is greinir frá því að um er að ræða eld í tækja og búnaðarskemmu. Pétur Pétursson, slökkvistjóri hjá Brunavörnum Árnessýslu, segir að um töluvert tjón sé að ræða.
Mikill eldur er í húsinu samkvæmt frétt Sunnlenska. „Þetta er talsvert stórt hús og mikill eldur í því. Við erum með menn og bíla frá Selfossi og Þorlákshöfn ásamt tankbíl frá Hveragerði á leiðinni á vettvang,“ sagði Pétur Pétursson, slökkviliðsstjóri, í samtali við sunnlenska.is.
Uppfært kl. 18:46:
RÚV greinir frá því að tveir voru fluttir á sjúkrahús til aðhlynningar vegna gruns um að þeir hefðu hlotið reykeitrun.
Slökkviliðið hefur ráðið niðurlögum eldsins en er enn að störfum á vettvangi við að slökkva í glæðum.