fbpx
Miðvikudagur 21.ágúst 2024
Fréttir

Guðmunda vill að hættum að vera sauðir samfélagsmiðlastjarna- „Bjuggum við þessi ósköp til?“

Ragna Gestsdóttir
Miðvikudaginn 21. ágúst 2024 16:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

„Hver er áhrifavaldurinn í þínu lífi? er oft spurt, hér áður voru þetta oftast nánustu ættingjar, kennarar og baráttufólk þá oftast fyrir mannréttindum bæði hér heima og erlendis.

Ef ungt fólk er spurt sömu spurningar í dag fengust allt önnur svör nefnd væru nöfn sem við jafnvel könnuðust ekkert við, því þau höfða til yngra fólks og er ekki beint að okkur hinum eldri, svo kallaðar Samfélagsmiðlastjörnur á Facebook, X, LinkedIn, Instagram, Snapchat, Reddit, TikTok, YouTube eða hvað þetta heitir nú allt saman,“

segir Guðmunda G. Guðmundsdóttir í pistli sínum „Á­hrifa­valdar“ og „Sauðirnir“ sem fylgja þeim á Vísi. 

Nefnir Guðmunda að samfélagsmiðlastjörnur eru oftast ungt fólk, þó með nokkrum skemmtilegum undantekningum, sem ef þeim tekst vel til eru fengin til að mæla með hinum og þessum vörum og fá greitt fyrir í réttu hlutfalli við fjölda áhangenda og læka.

„En þetta er harður heimur. Samfélagsmiðlastjarnan hlítur að örmagna sig, að reyna sífellt að vera betri en þau voru í gær, betri en hinir, koma með nýtt, gera eitthvað sniðugt, koma af stað nýju æði, fyrir sísvanga fylgjendur sína sem stöðugt krefjast meira og meira, stærri bita af Samfélagsmiðlastjörnunni sinni, hún er jú æðislegust og veit best.“

Áhrifavaldar hafa alltaf verið til

Segir Guðmunda að áhrifavaldar hafi alltaf verið til, þjóðþekkt fólk sem hefur leynt og ljóst auglýst vörur og þjónustu, „muniði Jón Páll í Svala auglýsingunum eða Frú Vigdísi Finnbogadóttur í fallegu ullarkjólnum sem hún bar svo glæsilega, eða kannski ég, er ég orðin áhrifavaldur?“ spyr Guðmunda. „Ég hef jú skrifað nokkrar greinar á Vísi og margar ratað í þeirra fréttir eða DV gert umfjöllun um þær, en nei ég hef ekki fengið neitt greitt frá neinum og er ekki spurð hvort megi nota greinarnar mínar hvað þá annað.“

Kallar fylgjendur sauði

Guðmunda víkur því næst orðum sínum að fylgjendum samfélagsmiðlastjarna og kallar þá sauði, því án þeirra væru engar samfélagsmiðlastjörnur til „því þær þrífast á okkur og trúgirni okkar og hollustu og þær gera næstum allt til að halda í okkur því annars hverfa þær í gleymsku og hætta að græða.

Þetta er hart og miskunnarlaust samband og erfitt að sjá hvor hefur völdin yfir hverjum eða hvar vitsmunirnir liggja ef þeir eru til staðar yfirleitt, því engin getur vitað allt en allir vita eitthvað, og efast má um gáfnafar báða hópana,“ segir Guðmunda.

„Eru Samfélagsmiðlastjörnur okkar sköpunarverk, bjuggum við þessi ósköp til? eða voru það þær sem öfluðu fylgjanda og urðu stjörnur? Þetta með Eggið og Hænuna, hvort kom á undan?“

Vill að við rífumst aftur líkt og í gamla daga

Guðmunda segir að kannski getum við kennt samfélagsmiðlum um, Facebook, X, LinkedIn, Instagram, Snapchat, Reddit, TikTok, YouTube því án þeirra væru vissulega engar samfélagsmiðlastjörnur og engir fylgjendur heldur.

„Hættum að nota þetta allt og förum að skrifast á og rífast í gegnum blöðin og skoðanir á þeirra síðum, svona eins og gert var í gamla daga, oft þurfti að bíða í viku eftir svari og stundum gaf fólk út smá blöð til að koma sínu á framfæri, og já það voru auglýsingar í þeim líka. Við losnum víst ekki við þær, þær fjármagna alla hluti og án þeirra væri fátt gert í íþróttum, tónlist eða hverslags viðburði til gagns eða gamans, svo fátt er svo með öllu íllt að ekki boði nokkuð gott,“ segir Guðmunda.

Guðmunda segir byggja grein sína lauslega á skoðanagrein sem birtist á Vísi síðastliðinn mánudag en sú grein var tekin úr birtingu fljótlega, þar sem greinarhöfundur sigldi undir fölsku flaggi. Bar greinin titilinn: Áhrifavaldar sníkjudýr sem endurspegla samfélagslega hnignun. Segir Guðmunda greinarhöfund hafa þóst vera annar en hann er og þegar upp um hann komst neitað að greinin birtist undir hans rétta nafni.

„Þessi grein var frekar gróf árás á áhrifavalda og fylgjendur þeirra, en samt svo margt rétt og átti fyllilega erindi í umræðuna, en það getur skipt máli hvernig hlutirnir eru orðaðir. Takk fyrir að skrifa greinina, leitt að þú gangist ekki við henni, greinin gengur ljósum logum á Facebook, enda fátt eins spennandi og eitthvað sem hefur verið bannað eða tekið úr birtingu,“ segir Guðmunda.

Grein Guðmundu má lesa í heild sinni hér.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 14 klukkutímum

Jón ómyrkur í máli: Bjóst við meiru frá Einari og segir borgina haga sér eins og „einhver kóngur“

Jón ómyrkur í máli: Bjóst við meiru frá Einari og segir borgina haga sér eins og „einhver kóngur“
Fréttir
Fyrir 15 klukkutímum

Þrír handrukkarar handteknir í gærkvöldi

Þrír handrukkarar handteknir í gærkvöldi
Fréttir
Í gær

Lést af völdum voðaskots á gæsaveiðum

Lést af völdum voðaskots á gæsaveiðum
Fréttir
Í gær

Áfram miklar líkur á kvikuhlaupi og jafnvel eldgosi á Sundhnúksgígaröðinni

Áfram miklar líkur á kvikuhlaupi og jafnvel eldgosi á Sundhnúksgígaröðinni