Laust fyrir klukkan átta í morgun barst lögreglu tilkynning um alvarlegt slys við Hálslón norðan Vatnajökuls. Viðbragðsaðilar héldu þegar á staðinn, sjúkralið og lögregla auk þess sem þyrla landhelgisgæslu var kölluð til.
Hinn slasaði var úrskurðaður látinn á vettvangi.
Í tilkynningu frá lögreglu kemur fram að tildrög slyssins eru til rannsóknar hjá lögreglu. Frekari upplýsingar er ekki hægt að gefa að svo stöddu.