fbpx
Laugardagur 17.ágúst 2024
Fréttir

Vísir braut siðareglur með myndbirtingu

Ritstjórn DV
Laugardaginn 17. ágúst 2024 15:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Siðanefnd Blaðamannafélags Íslands telur að Vísir og tveir blaðamenn fjölmiðilsins hafi brotið gegn siðareglum Blaðamannafélags Íslands með birtingu myndar þann 27. maí síðastliðinn. Brotið er ámælisvert.

Sonur manns, sem fannst látinn á heimili sínu í Bolungarvík þann 27. maí, kærði til Siðanefndar myndbirtingu af húsi hins látna i Bolungarvík með frétt um lögregluaðgerð á staðnum, sem birt var á vef Vísis 27. maí sl. kl.23:00 Kærandi taldi að húsið hafi verið auðþekkjanlegt í fréttinni og myndbirtinguna brot á friðhelgi einkalífs og ekki varðað almannahagsmuni.

Mynd tekin úr birtingu degi síðar

Í kærunni kemur fram að lögregla hafi komið kl. 22:53 á heimili kæranda og tilkynnt honum að faðir hans og eiginkona hafi fundist látin á heimili sínu í Bolungarvík. Lögreglumaðurinn hafi farið um kl.23:15. Um kl.23:30 hafi kærandi séð frétt á vefmiðlinum Vísi þar sem fram kom að lögreglan væri að rannsaka andlát í húsi við Hlíðarveg í Bolungarvík og mynd birt af húsinu. Kærandi kveður að við Hlíðarveg séu 7 hús og fljótgert sé að fletta því upp hverjir búa í húsinu. Kærandi segir að flestir aðstandendur hafi frétt af andlátinu í gegnum Vísi enda hafi þeir þekkt húsið um leið.

Kærandi segist hafa hringt í Vísi rétt fyrir miðnætti og kvartað yfir fréttaflutningi og myndbirtingu, en aðeins verið sagt að það væri leitt að þetta færi fyrir brjóstið á fólki. Myndin hafi ekki verið tekin úr birtingu fyrr en undir hádegi daginn eftir. Kærandi segir myndbirtinguna persónurekjanlega, blaðamennirnir virði ekki friðhelgi einkalífsins, engir almannahagsmunir styðji myndbirtingu og tillitssemi sé ekki gætt í fréttinni.

Bentu á að allir miðlar hefðu fjallað um málið

Kærðu kröfðust þess að kærunni yrði hafnað. Bentu þeir á að aðrir miðlar, DV, RÚV og Mbl hafi einnig birt fréttir um málið, sá síðasttaldi kl. 22.29 eða um hálftíma á undan Vísi. Þegar myndin hafi verið birt hafi umfangsmikil lögregluaðgerð verið í gangi í nærri fimm klukkustundir þar sem andlát var til rannsóknar. Upplýsingar um málið hafi verið settar fram á sanngjarnan og heiðarlegan hátt. Kærðu bentu jafnframt á að meginskylda blaðamanna sé að standa vörð um tjáningarfrelsið, frjálsa fjölmiðlun og rétt almennings til upplýsinga, samanber 2. grein gildandi siðareglna. Í þeim sé hvergi vikið að friðhelgi einkalífs.

Frétt DV 27. maí síðastliðinn: Andlát í Bolungarvík til rannsóknar

Siðanefnd Blaðamannafélags Íslands ákvað að taka málið til umfjöllunar þrátt fyrir að kærandi hafi vísað til eldri siðareglna sem fallnar eru úr gildi og ákvarða hvort brotið hefði verið gegn 2. grein siðareglna um sanngirni og heiðarleika.

Í úrskurði Siðanefndar segir:

„Í hinni kærðu frétt er sagt frá umfangsmikilli lögregluaðgerð á Bolungarvík þar sem andlát var til rannsóknar. Umrædd mynd er skjáskot af ja.is og hefur því ekkert sjálfstætt fréttagildi. Að mati Siðanefndar var það ósanngjarnt gagnvart kæranda og öðrum aðstandendum að birta myndina á þeim tíma sem það var gert, í ljósi alvarleika málsins. Myndin var tekin úr birtingu daginn eftir, en þess ekki getið í fréttinni að myndin hafi verið tekin út, né beðist velvirðingar á því. Að mati Siðanefndar eru það ekki sanngjörn eða heiðarleg vinnubrögð.

Á hinn bóginn verður ekki framhjá því litið að aðgerðir lögreglu á vettvangi voru fyrir allra augum á Bolungarvík og höfðu staðið yfir í nokkrar klukkustundir þegar fyrstu fréttir voru birtar. Fréttir af alvarlegum atburðum varða almannahagsmuni og eiga erindi til almennings en gæta verður sanngirni eins og kveðið er á um í 2. gr. siðareglna.

Úrskurðarorð:
Kærðu teljast hafa brotið gegn siðareglum Blaðamannafélags Íslands með birtingu myndar þann 27. maí sl. Brotið er ámælisvert.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 3 dögum

Íslensk blúsgoðsögn lést í brunanum við Amtmannsstíg

Íslensk blúsgoðsögn lést í brunanum við Amtmannsstíg
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Þrjóska Úlfgríms bjargaði Margréti úr eldsvoðanum í gær

Þrjóska Úlfgríms bjargaði Margréti úr eldsvoðanum í gær