Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu leitar nú ökumanns sem ók á unglingsstúlku á Vatnsendavegi í Kópavogi, við Ögurhvarf, um klukkan 15:00 á miðvikudag.
„Stúlkan, ásamt vinkonu, var að ganga til vesturs og yfir Vatnsendaveg þegar bifreið var ekið suður götuna og á stúlkuna,“ segir í tilkynningu lögreglunnar. „Hún hafnaði á vélarhlíf bifreiðarinnar og rann síðan af henni, en ökumaðurinn skeytti því engu og ók rakleiðis af vettvangi.“
Töluverð umferð var en enginn sá ástæðu til að athuga með líðan stúlkunnar. Hún fór heim og lét foreldra sína vita. Þeir höfðu síðan samband við lögreglu. Var stúlkunni komið undir læknishendur en upplýsingar um meiðsli liggja ekki fyrir.
„Við atvik eins og þetta er mikilvægt að ökumenn gangi úr skugga um að engin meiðsl hafi hlotist af né að skemmdir hafi orðið. Sömuleiðis er áríðandi að tilkynna málið til lögreglu, ekki síst vegna þess að áverkar eru ekki alltaf sjáanlegir á vettvangi,“ segir í tilkynningunni. „Lögreglan biður umræddan ökumann um að gefa sig fram en hafi aðrir orðið vitni að slysinu eru hinir sömu beðnir um að hafa samband í síma 444 1000. Upplýsingum um málið má sömuleiðis koma á framfæri í tölvupósti á netfangið sigrun.jonasdottir@lrh.is“