fbpx
Þriðjudagur 01.apríl 2025
Fréttir

Halla Tómasdóttir sett í embætti forseta Íslands – Svona verður dagskráin

Kristinn H. Guðnason
Fimmtudaginn 1. ágúst 2024 10:00

Halla Tómasdóttir sjöundi forseti Íslands.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Halla Tómasdóttir, nýr forseti Íslands, verður sett í embætti í dag. Hún verður sjöundi forseti lýðveldisins Íslands og önnur konan sem gegnir embættinu.

Setningarathöfnin fer fram í Dómkirkjunni og í Alþingishúsinu klukkan 15:30 í dag. Almenningur er boðinn velkominn á Austurvöll til að fylgjast með dagskránni og fagna nýjum forseta. Skjáir verða settir upp til að fólk geti fylgst með. Einnig verður sýnt beint frá athöfninni í sjónvarpi.

Dagskráin

Dagskráin byrjar með helgistund í Dómkirkjunni sem biskup Íslands og dómkirkjuprestur sjá um. Dómkórinn í Reykjavík syngur ásamt Sigríði Thorlacius einsöngvara og skólakór Kársness.

Athöfnin byrjar í Dómkirkjunni.

Þá verður farið yfir í Alþingishúsið þar sem fer fram eiginleg setningarathöfn undir stjórn Birgis Ármannssonar, forseta Alþingis, en hann er handhafi forsetavalds ásamt Benedikt Bogasyni forseta Hæstaréttar og Bjarna Benediktssyni forsætisráðherra þar til setningunni er lokið. Sú athöfn hefst á einsöngi. Þá er lýst forsetakjöri og nýr forseti sver drengskaparheit sitt.

Eftir það fer forseti á svalir þinghússins og minnist fósturjarðarinnar og flytur svo ávarp. Að lokum er þjóðsöngurinn sunginn og þá er hinni formlegu athöfn lokið.

Eftir athöfnina verður 110 gestum boðið í nýtt skrifstofuhúsnæði Alþingis, sem kallast Smiðjan. Er það í fyrsta skipti sem það húsnæði er notað.

Með viðskiptabakgrunn

Halla Tómasdóttir er 55 ára gömul, fædd í Reykjavík þann 11. október árið 1968. Hún er menntuð sem viðskiptafræðingur og nam við ýmsa skóla í Bandaríkjunum og Bretlandi. Hún hefur meðal annars starfað sem mannauðsstjóri, sett á fót stjórnendaskóla, verið framkvæmdastjóri Viðskiptaráðs, stofnað fjármálafyrirtækið Auði Capital og skipulagt jafnréttisráðstefnuna WE2015.

Halla í viðtali hjá Eyjunni.

Hún var ein af stofnendum Mauraþúfunnar sem hrinti af stað Þjóðfundinum árið 2009. En verkefni hans var að taka afstöðu til þess hvernig samfélag Íslendingar vildu byggja upp eftir bankahrunið árið áður.

Halla er gift Birni Skúlasyni, viðskiptafræðingi og heilsukokki. Þau eiga tvö börn, Tómas Bjart og Auði Ínu.

Afgerandi kosning

Íslendingar kusu Höllu sem forseta Íslands þann 2. júní síðastliðinn með 34,15 prósentum atkvæða. Hlaut hún nokkuð jafnt fylgi eftir kjördæmum, minnst  30,11 prósent í Norðvesturkjördæmi en mest 37,83 prósent í Suðvesturkjördæmi.

Það var mikið fagnað á kosningavöku Höllu í Grósku.

Alls hlaut hún 73.182 atkvæði í kosningunum og afgerandi kosningu. Í öðru sæti var Katrín Jakobsdóttir, fyrrverandi forsætisráðherra, með 25,19 prósent, eða um 9 prósentum minna en Halla.

Halla hafði áður boðið sig fram til forseta, árið 2016. Þá hlaut hún 27,93 prósent og var í öðru sæti á eftir Guðna Th. Jóhannessyni sem vann kosningarnar með 39,08 prósentum.

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 14 klukkutímum

Gómez hvarf á afmæli yngsta barnsins og fannst 10 dögum síðar í Þorlákshöfn – „Þú ert búinn að valda mér og mínum tilfinningalegum skaða“

Gómez hvarf á afmæli yngsta barnsins og fannst 10 dögum síðar í Þorlákshöfn – „Þú ert búinn að valda mér og mínum tilfinningalegum skaða“
Fréttir
Fyrir 20 klukkutímum

Egill furðu lostinn eftir ferðalag um vegi landsins og margir taka undir – „Hvað veldur og hvað er til ráða?“

Egill furðu lostinn eftir ferðalag um vegi landsins og margir taka undir – „Hvað veldur og hvað er til ráða?“
Fréttir
Fyrir 21 klukkutímum

Notuðu 2.000 lítra af vatni til að slökkva eldinn

Notuðu 2.000 lítra af vatni til að slökkva eldinn
Fréttir
Í gær

Telur útilokað að Ísland gangi í ESB á kjörtímabili Trumps

Telur útilokað að Ísland gangi í ESB á kjörtímabili Trumps
Fréttir
Í gær

Segir rógi, rangfærslum og níði hafa verið beitt gegn Magnúsi Karli

Segir rógi, rangfærslum og níði hafa verið beitt gegn Magnúsi Karli
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Gæði vatnsins í Hveragerði ekki viðunandi en ekki talin heilsuspillandi

Gæði vatnsins í Hveragerði ekki viðunandi en ekki talin heilsuspillandi
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Opinber X-síða Hvíta hússins hneykslar – „Við munum finna ykkur – og við munum drepa ykkur“

Opinber X-síða Hvíta hússins hneykslar – „Við munum finna ykkur – og við munum drepa ykkur“