fbpx
Sunnudagur 06.október 2024
Fréttir

Krabbameinsgreindir fá ýmsan kostnað ekki endurgreiddan frá kerfinu – „Hver er svo sem ekki með hálfa milljón í rassvasanum?“

Ragna Gestsdóttir
Mánudaginn 8. júlí 2024 12:00

Mynd úr safni Mynd samsett: DV/Unsplash.com

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

 „Það er enginn undirbúinn fyrir það að greinast með krabbamein, hvað þá heldur aðstandendurnir sem elska hann, hafa planað og séð fyrir sér alla framtíðina með viðkomandi. Ég hef því miður reynslu af þessu sem aðstandandi. Það má segja að sorgarferlið byrji strax frá upphafi þar sem maður fer að hugsa um hvað af því sem maður hafði séð fyrir sér sé ekki að fara að verða að veruleika ef allt fer á versta veg,“

segir Davíð Brynjar Sigurjónsson leikskólakennari og knattspyrnudómari í grein sinni á Vísi.

Davíð Brynjar Sigurjónsson

Segir Davíð að maður vill samt ekki fara langt með þá hugsun í upphafi heldur frekar halda í jákvæðnina og sjá fyrir sér þá leið sem liggur til bata. „Hvað ef“ hugsunin sé samt dugleg að banka upp á og til að byrja með gengur vel að láta hana sem vind um eyru þjóta, enda allir staðráðnir í að sigra þessa baráttu sem framundan er.

„Jákvæðar fréttir, aðgerðin gekk vel og lyfjameðferð ráðgerð til vonar og vara. Nokkrir mánuðir líða og næsti skellur kemur af fullu afli… meinvörp komin í höfuð. Aðgerðin gengur vel, geisli fyrirhugaður. Mánuðir líða með jákvæðnina við stýrið… næsti skellur…“ segir Davíð.

„Svona gengur þetta fyrir sig í tæplega þrjú ár, jákvæðnin og vonin tekin yfir en er svo slegin niður jafnóðum, aftur og aftur og aftur. Samhliða þessum öldugangi sveiflast tilfinningar og líðan allra í fjölskyldunni líkt og í ólgusjó en í hvert skipti sem öldutoppi er náð virðumst við fá á okkur brotsjó sem steypir okkur niður í næsta öldudal. Ætli næsta alda sé of há til að von sé að ná toppnum og þaðan út úr þessum stormi? Eða er bara næsti öldudalur handan hennar? Hve djúpur er hann? „Hvað ef“ hugsunin bankar fastar og fastar eftir hverja öldu. Taugakerfið þolir bara visst mikið í einu og í takmarkaðan tíma. Er næsta símtal símtalið sem þú vonaðist til að þurfa ekki að fá aftur… í annað, þriðja eða fjórða skiptið. Endar þetta ferðalag á öldutoppi eða í dýpsta öldudalnum? Á vissum tímapunkti er taugakerfið í stanslausri viðbragðsstöðu nánast allan sólarhringinn. Í draumunum færðu ekki einu sinni frí, þar lendirðu jafnvel í þínum verstu áföllum því þá er rökhugsunin komin í hvíld og ímyndunaraflið fær að ráða för.“

Ómetanlegur stuðningur frá félögum

Davíð segir að í gegnum ferlið sé hægt að fá ómetanlegan stuðning, ráðgjöf og sáluhjálp frá félögum líkt og Ljósinu og Krabbameinsfélaginu. 

„Ýmis kostnaður sem lendir á hinum krabbameinsgreinda fæst hvergi endurgreiddur í kerfinu og þar kom Krabbameinsfélag Austfjarða sterkt inn í tilfelli foreldra minna. Vel yfir hálfa milljón þurftu þau að leggja út fyrir gistingu og fæði á sjúkrahóteli Landspítalans á meðan á aðgerðum og meðferðum stóð. Hver er svo sem ekki með hálfa milljón í rassvasanum, sérstaklega þegar alvarleg veikindi fjölskyldumeðlims hafa neytt báðar fyrirvinnur heimilisins af vinnumarkaði?“ segi Davíð og segir foreldra hans hafa fengið þá upphæð endurgreidda frá Krabbameinsfélaginu og muni um minna.

Fjölskyldan eigi því þessum félögum margt að þakka og hafi meðal annars nýtt sér allskonar námskeið og sálfræðiráðgjöf sem hefur hjálpað henni að komast í gegnum allt þetta ferli. 

„Pabbi var hins vegar ekki svo heppinn að komast í mark og varð því miður að játa sig sigraðan í síðasta öldudalnum.“

Styrktu: Krabbameinsfélag Austfjarða

Styrktu: Ljósið – Endurhæfing fyrir krabbameinsgreinda

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 2 dögum

Engin miskunn gegn eftirlýstri móður – Verður framseld og þarf að sitja í fangelsi

Engin miskunn gegn eftirlýstri móður – Verður framseld og þarf að sitja í fangelsi
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Hyggjast knýja á um íbúakosningu fyrst bæjarstjórn Hafnarfjarðar samþykki hana ekki

Hyggjast knýja á um íbúakosningu fyrst bæjarstjórn Hafnarfjarðar samþykki hana ekki