fbpx
Mánudagur 08.júlí 2024
Fréttir

Ásta er haldin blokkarótta og vill að fleiri viðurkenni hann – „Ráðumst á hann saman“

Ragna Gestsdóttir
Föstudaginn 5. júlí 2024 13:03

Blokkir við Sæbraut í Reykjavík Mynd: Fréttablaðið/GVA

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

„Ég verð að viðurkenna að ég skil bara fullkomlega hræðsluna við blokkir. Mér finnst það óeðlilegt að hræðast ekki blokkir eins og uppbyggingin á höfuðborgarsvæðinu hefur verið undanfarið og skipulagið segir til um framtíðar uppbyggingu. Ég viðurkenni það fúslega, ég óttast blokkir!“

segir Ásta Logadóttir PhD verkfræðingur hjá Lotu í grein sinni á Vísi.

Vísar Ásta til greinar á Vísi með titlinum Grafarvogsbúar þurfa ekki að óttast blokkir, þar sem Einar Þorsteinsson svarar fyrir þéttingu byggðar í Grafarvogi.

Ásta Logadóttir
Mynd: visir.is

Hvetur fleiri til að vera opnir með blokkaróttann

Ásta segir grein sína vera ákall til íbúa höfuðborgarsvæðisins og ráðafólks: „Okkur langar að hvetja íbúa til að fylgja eftir fordæmi Grafarvogsbúa og vera opin með blokkaróttann sinn til að ná til fjölmiðla og stjórnvalda. Það skiptir máli að láta í sér heyra! Einnig viljum fá viðmiðunarreglur eins og nágrannalöndin okkar til þess að við getum vandað okkur við þéttingu byggðar svo við þurfum ekki að vera hrædd við blokkir!“

Ásta segir að það sé allt í lagi að óttast svo lengi sem maður viðurkennir óttann sinn og láti hann ekki stjórna manni. Hvað þá heilu samfélagi. Segir hún að sig gruni nefnilega að það séu fleiri en hún og Grafarvogsbúar sem hræðist þessar ógurlegu blokkir. 

„Ástæðan fyrir blokkaróttanum mínum byggist á stöðu þéttingar byggðar sem tapaði áttavitanum einhverstaðar á lífsleiðinni og það virðist sem háar og djúpar byggingar sem standa þétt séu eina markmiðið. Blokkaróttinn stafar af því að ég veit að það eru til aðferðir sem notaðar eru í nágrannalöndum okkar sem stuðla að lífsgæðum íbúa í þeim blokkum sem þar eru byggðar. Hérlendis höfum við skoðað hvað hinir eru að gera en ekki innleitt í nein ferli við þéttingu byggðar. 

Blokkaróttinn stafar einnig af því að hér eru auglýstar bjartar blokkir sem eru umhverfisvottaðar og ég veit ekki hvað, en raunin er sú að við þá vottun er langt frá því öruggt að nokkur dagsbirta komist inn um glugga þessa umhverfisvottuðu hverfa eða bygginga.“

Ásta segir að sig gruni að embættismenn séu hræddir við að setja á breytingar sem tryggja að tekið sé tillit til íbúanna í þéttingarstefnu. Því það þýði að það þarf að breyta frá núverandi stefnu og mögulega takmarka eitthvað hæðir, dýpt og þéttleika bygginga. 

„Mig grunar að þeir sem maka krókinn á núverandi þéttingarreitum séu hræddir við að lækka tekjur sínar af hverjum reit. Mig grunar að við sem samfélag látum óttann við breytingar stjórna okkur og hér sitjum við í klóm óttans og ekkert breytist til hins betra,“ segir Ásta.

„Í dag er ekkert að gerast. Enginn að hanna með innivist þessara blokka að leiðarljósi. Mikið væri innilega gaman ef við fengum að horfast í augu við þennan ótta, leyfa honum að vera þarna til tryggja að við skoðum örugglega hvort við séum að fara vel með þéttingu byggðar en leyfum óttanum ekki að stjórna okkur með því að vera andvíg þéttingu byggðar. Mig langar að við horfum á þennan ótta og ráðumst á hann. Ráðumst á hann saman. Í þessum bardaga væri bannað að fara í vörn út af ótta. Við myndum leggja öll spilin á borðið og finna saman út úr þessu með hagsmuni íbúanna að leiðarljósi.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 2 dögum

Hjólahvíslarinn ánægður – „Farið að rofa til í þeim málum loksins“

Hjólahvíslarinn ánægður – „Farið að rofa til í þeim málum loksins“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Eyjamenn ósáttir við þögn Orkustofnunar og ætla í hart

Eyjamenn ósáttir við þögn Orkustofnunar og ætla í hart
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Kveikti opinn eld á tjaldsvæðinu og hótaði tjaldverðinum sem ávítaði hann – „Þetta líðum við ekki hér á Hvolsvelli“

Kveikti opinn eld á tjaldsvæðinu og hótaði tjaldverðinum sem ávítaði hann – „Þetta líðum við ekki hér á Hvolsvelli“
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Kona varð að ganga með neyðarhnapp árum saman vegna ofsókna Kourani – „Varð óvinnufær með öllu“

Kona varð að ganga með neyðarhnapp árum saman vegna ofsókna Kourani – „Varð óvinnufær með öllu“
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Óttast að allt sjóði upp úr í Frakklandi

Óttast að allt sjóði upp úr í Frakklandi
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Læknir sem var laminn fyrir að neita manni um morfínlyf fær ekki bætur – „Ertu að kýla mig helvítið þitt?“

Læknir sem var laminn fyrir að neita manni um morfínlyf fær ekki bætur – „Ertu að kýla mig helvítið þitt?“