fbpx
Laugardagur 06.júlí 2024
Fréttir

Syndis ræður einn reynslumesta sérfræðing Svíþjóðar í netöryggi

Ragna Gestsdóttir
Fimmtudaginn 4. júlí 2024 09:37

Anton Már Egilsson, forstjóri Syndis, býður David Jakoby velkominn til starfa.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

 Syndis hefur ráðið David Jacoby, einn reynslumesta sérfræðing Svíþjóðar í netöryggi. Ráðning hans er mikilvæg viðbót við öflugt teymi Syndis og styrkir fyrirtækið í sókn á alþjóðamarkað, eins og segir í tilkynningu.

David Jacoby hefur yfir 25 ára reynslu í netöryggismálum. Ferill hans spannar fjölbreytt hlutverk hjá þekktum fyrirtækjum. Hann hefur m.a. gegnt lykilhlutverkum hjá Kaspersky Lab,  TrueSec AB og Outpost24. 

David er þekktur í Svíþjóð en nálgun Davids á netöryggi hefur m.a. verið sýnd í sænska sjónvarpsþættinum „HACKAD.“ Þar voru raunverulegar árásir framkvæmdar í beinni útsendingu. Einnig er David vel þekktur fyrirlesari og tekur reglulega þátt í ráðstefnum um allan heim. Undanfarið hefur hann leitt sitt eigið netöryggisfyrirtæki, boðið upp á ráðgjöf og þróað háþróaðar öryggislausnir og áætlanir, sem sýnir áhuga og áherslu hans á nýsköpun.

David er í grunninn hakkari og hefur því djúpa þekkingu á netárásum, hvernig þær fara fram og hvernig best er að verjast þeim. Stefna Syndis byggir á að skilningur á sóknarleik sé nauðsyn til að tryggja góða vörn.

Reynsla sem styrkir sókn Syndis á alþjóðavettvangi

,,Ég er gríðarlega spenntur að ganga til liðs við Syndis, þegar kemur að hugmyndafræði og sýn þá deilum við þeirri sömu skoðun um að gera internetið að öruggari stað fyrir alla.  Netöryggi á ekki að vera munaðarvara heldur aðgengileg þjónusta fyrir alla, því náum ekki bara með hagkvæmum og skilvirkum lausnum heldur líka með því að virkja fólk með okkur og auka þekkingu allra. Teymið hjá Syndis samanstendur af gríðarlega hæfu fólki bæði þegar kemur að sókn og vörn í netöryggi, samsetning sem hefur sýnt sig að skilar góðum árangri við að auka þroska viðskiptavinarins.  Ég hef fylgst með Syndis úr fjarlægð í langan tíma en fæ nú loks að vinna með þessu öfluga félagi og hafa áhrif á þessum spennandi tímum,“ segir David Jacoby.

,,Þessi víðtæka reynsla Davids verður ómetanleg þegar við höldum áfram að vaxa á bæði Sænskum og alþjóðlegum vettvangi. Sérfræðiþekking hans mun ekki aðeins auka vöru- og þjónustuframboð okkar, heldur einnig styrkja Syndis með enn breiðari og dýpri þekkingu. Við trúum því að reynsla hans og leiðtogahæfileikar muni auka enn okkar hraða vöxt og við gætum ekki verið ánægðari með að fá David í okkar hóp. Við hlökkum til að nýta sérfræðiþekkingu hans og framtíðarsýn til að styrkja stöðu okkar á nýjum mörkuðum. Við ætlum okkur að „unhack the Planet,“ segir Anton Már Egilsson, forstjóri Syndis

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Í gær

Stórsigur Verkamannaflokksins – Starmer verður forsætisráðherra

Stórsigur Verkamannaflokksins – Starmer verður forsætisráðherra
Fréttir
Í gær

Hryðjuverk í Kákasus sýnir veikleika Rússa á svæðinu

Hryðjuverk í Kákasus sýnir veikleika Rússa á svæðinu
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Alvarlegt umferðarslys við Gígjukvísl

Alvarlegt umferðarslys við Gígjukvísl
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Breiðablik ósátt við Kópavogsbæ og vill fá styrk

Breiðablik ósátt við Kópavogsbæ og vill fá styrk