Herinn í Malí rændi völdum fyrir nokkrum árum og síðan þá hefur verið hart barist í landinu en þar takast herinn og uppreisnarhópar íslamista á. Herinn hefur þó ekki háð baráttuna einn því hann hefur fengið aðstoð frá Wagnerhópnum en herinn segir að Wagnerhópurinn aðstoði bara við vopn og búnað sem er keyptur frá Rússlandi.
Uppreisnarhópur Tuareg-ættbálksins í norðurhluta Malí segist hafa setið fyrir Wagnerliðum nýlega og hafi fellt rúmlega 20 og sært fjölda því til viðbótar.
Talið er að hinn þekkti áróðursbloggari Nikita Fedyanin sé meðal hinna föllnu. Hann stóð á bak við Telegramrásina „Grey Zone“ sem fjallaði mikið um hvað Wagnerhópurinn tók sér fyrir hendur.
Reuters segir að margir þekktir rússneskir herbloggarar hafi staðfest frásögn uppreisnarmannanna, þeirra á meðal Semyon Pegov sem gengur undir bloggheitinu „War Gonzo“. Hann skrifaði á bloggsíðu sína að Wagnerliðarnir hafi verið á ferð með bílalest hersins þegar ráðist var á hana. Nokkrir hafi verið felldir og margir teknir höndum.
Uppreisnarhreyfingin „CSP-PSD“ sagði á laugardaginn að hún hafi náð brynvörðum ökutækjum, flutningabílum og skriðdrekum á sitt vald í átökum við stjórnarherinn nærri landamærabænum Tinzaouaten á fimmtudaginn og föstudaginn. Hreyfingin sagðist einni hafa skemmt þyrlu sem hrapaði síðar í bænum Kidal í mörg hundruð kílómetra fjarlægð.