Byggðastofnun hefur farið fram á nauðungarsölu á fasteignum í eigu sjálfseignastofnunarinnar, Aurora Observatory.
Um er að ræða jörðina Kárhól í Reykjadal og samnefnda byggingu sem átti að hýsa glæsilega kínversk-íslensk rannsóknastöð um norðurslóðir.
Verkefnið hófst í apríl árið 2012 þegar Össur Skarphéðinsson, utanríkisráðherra Íslands og Yang Jiechi, utanríkisráðherra Kína, undirrituðu rammasamning um samstarf Íslands og Kína í málefnum norðurslóða með áherslur á rannsóknir og samgöngumál á norðurslóðum
Ákveðið var að reisa 760 fermetra rannsóknarstöð á áðurnefndri jörð sem skráð var í eigu sjálfseignastofnunarinnar Aurora Observatory, sem er að stærstum hluta í eigu nærliggjandi sveitarfélaga og Sparisjóðs Suður-Þingeyinga auk nokkurra einstaklinga.
Húsið var vígt við hátíðlega athöfn árið 2018, þá enn óklárað en þar átti að vera fjölbreytt starfsemi sem og til að mynda gestastofa þar sem ferðamenn gætu kíkt í heimsókn og kynnt sér starfsemina.
Verkefnið var að mestu fjármagnað með styrkjum en Aurora Observatory tók einnig 120 milljón króna lán frá Byggðastofnun í apríl 2020 til að standa straum af uppbyggingunni á jörðinni. Á móti áttu svo að koma leigutekjur frá þeim kínversku og íslensku aðilum sem ætluðu að vera með starfsemi í stöðinni.
Þær áætlanir hafa farið í vaskinn, hin glæsilega rannsóknarstöð stendur enn ókláruð á jörðinni og starfsemi þar er í mýflugmynd. Áðurnefnt lán frá Byggðastofnun er gjaldfallið og stendur nú í tæplega 176 milljónum króna.
Ekki tókst að ná í forsvarsmenn Aurora Observatory við vinnslu fréttarinnar en fjallað verður nánar um málið á næstu dögum.