CNN greinir frá þessu og segir að Rússar hafi átt erfitt með að fá fólk til að skrá sig í herinn að undanförnu.
Það var borgarstjóri Moskvu, Sergey Sobyanin, sem kynnti greiðslurnar í gær og getur hver sá sem skráir sig í herinn vænst þess að fá þrjár milljónir króna við undirskrift samnings. Á einu ári geta samanlagðar greiðslur numið rúmum átta milljónum króna.
Þá geta þeir hermenn sem slasast vænst þess að fá allt að eina og hálfa milljón króna í bætur og fjölskyldur þeirra hermanna sem deyja á vígvellinum geta átt von á því að fá rúmar fimm milljónir króna í bætur.
Óvissa ríkir um hversu margir rússneskir hermenn hafa dáið í Úkraínu en samkvæmt frétt CNN er áætlað að 70 þúsund hermenn hafi dáið eða slasast í maí og júnímánuði.