fbpx
Þriðjudagur 23.júlí 2024
Fréttir

Steinari ofbýður framkoma við erlenda ferðamenn – Var seldur pilsner við Seljalandsfoss þegar þau báðu um bjór

Ritstjórn DV
Þriðjudaginn 23. júlí 2024 14:30

Seljalandsfoss. Youtube-skjáskot.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Steinar Sveinsson hefur verið leiðsögumaður í yfir tvo áratugi. Hann telur ferðaþjónustuna vera á rangri leið og gestrisni í garð erlendra ferðamanna hafa hrakað með sívaxandi og flókinni gjaldtöku.

Steinari ofbauð þegar hann horfði upp á það á þjónustumiðstöðinni við Seljalandsfoss að ferðamönnum sem pöntuðu bjór var seldur lítt áfengur pilsner.

Steinar skrifar grein um þetta meinta ófremdarástand í Facebook-hópinn Bakland ferðaþjónustunnar. Pistillinn er eftirfarandi:

„Ég hef verið viðriðinn ferðaþjónustuna sem leiðsögumaður núna í rúm 20 ár. Mér finnst ákaflega margt vera á mjög svo rangri leið verð ég að segja, með þeim fyrirvara að eflaust á það við að maður sé að verða gamall nöldrari.

Það er ömurlegt að frelsi ferðalagsins sé núna nánast horfið víða. Það er og hefur verið besta markaðssetning Íslands. Það er óþarfi að krefja ríkið um meiri pening í markaðssetningu þegar við fólkinu sem þó kemur taka gjaldhlið út um allt land, jafnvel án allrar þjónustu. Gestrisnin er farin, af hverju þá að bjóða fólk velkomið dýrum dómi? Eitt það nýjasta er að ráðherra setti á gjaldtöku á malarstæðum við Jökulsárlón en ekkert hefur breyst, klósettmál eru í lamasessi.

Einnig standa nú hliðverðir frá Umhverfisstofnun og stöðva alla bíla rétt utan við Landmannalaugar og heimta bílastæðagjöld fyrir malarplanið. Svo kemur fólk inn á svæðið og þá skal borga Ferðafélaginu það sem því svo sannarlega ber fyrir að halda úti ágætri salernisaðstöðu. Auðvitað ruglar svona margföld gjaldtaka inn á sama svæðið fólk í ríminu og er lítt til þess fallin að gleðja það.

Ekki get ég ímyndað mér að það sé góð útgerð hjá Umhverfisstofnun að halda úti allt að þremur starfsmönnum til að rukka smábíla um 450 krónur. Ég á erfitt með að skilja tekju- og kostnaðarmódelið í því. Ég skil heldur ekki hvernig það gekk í gegn skipulags- eða leyfalega. Og allt var þetta gert nánast án fyrirvara eða kynningar. Dónaskapur stjórnvalda gagnvart ferðaþjónustunni er slíkur.

Gjaldskylduskilti eru komin út um allt og ferðamenn klóra sér í hausnum og þora eflaust oft ekki öðru en að borga. Oft er verið að fiska í gruggugu vatni. Skilti einfaldlega sett upp og treyst á guð og lukkuna, og Parka. Við Gluggafoss er skilti núna innan við girðingu landeigenda. Við malarstæði sem hefur verið þar í áratugi og landeigendur aldrei haft kostnað af en sveitarfélagið þjónustað. Borð og bekkur við fossinn er merkt Katla Geopark og Evrópusambandinu! Þar tókst okkur að sníkja út styrk fyrir ómerkilegu viðarborði en Evrópubúarnir sem heimsækja okkur skulu borga fyrir að nota það.

Við Kirkjufell er rukkað á bílastæðinu. Hvergi innan Grundarfjarðarbæjar sjálfs er rukkað. Útlendingarnir, sem þó borga hæstu fasteignagjöldin í gegnum hótelgistingar sínar, skulu hundeltir og borga alls staðar sem þeir vilja stoppa í nokkrar mínútur. Samt þykjumst við vilja bjóða þá velkomna og að ríkið leggi milljarða í auglýsingaherferðir þess vegna.

Steininn tók svo út með ókurteisina og viðhorfið gagnvart ferðamönnum fyrir nokkrum dögum við Seljalandsfoss. Þá keyptu ferðamennirnir mínir sér ,,bjór“ í veitingaaðstöðunni þar og var þeim seldur pilsner. Ég benti þeim á það, margspurði hvort þau hefðu örugglega beðið um bjór, og fór með bjórana aftur til stúlknana sem seldu þeim meintan ,,bjór“ og krafðist skýringa. Þetta þótti nú auðvitað talsvert röfl í mér, þótti ekki tiltökumál og lítið til að kvarta yfir, og mér var sagt að pilsner væri nú það eina sem þau höfðu sem líktist bjór. Ég sagði að þau gætu nú ekki samt sem áður selt pilsner sem bjór ef beðið væri um bjór og að það væri ekkert nema svindl. Að lokum var endurgreitt.

Svona er þetta allt orðið. Ég held að á meðan svo er og á meðan stjórnvöld og ferðaþjónustuaðilar margir virða gesti okkar lítils sem einskis þá sé óþarfi að setja marga milljarða af skattpeningum í að reyna að lokka fólk hingað til lands þegar þessar móttökur bíða þess.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Í gær

Holskefla ofbeldisbrota gagnvart börnum gæti skýrst af kórónuveirufaraldrinum

Holskefla ofbeldisbrota gagnvart börnum gæti skýrst af kórónuveirufaraldrinum
Fréttir
Í gær

Kamala Harris býður sig fram til forseta

Kamala Harris býður sig fram til forseta
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Ása og börnin boðuðu til blaðamannafundar – „Enginn vill trúa því að fjölskyldumeðlimur, pabbi þeirra, bróðir eða eiginmaður geti framið slík myrkraverk“

Ása og börnin boðuðu til blaðamannafundar – „Enginn vill trúa því að fjölskyldumeðlimur, pabbi þeirra, bróðir eða eiginmaður geti framið slík myrkraverk“
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Helgi vísar ásökunum um rasisma á bug og sakar Odd um atvinnuróg og dylgjur – „Þetta er lygi“

Helgi vísar ásökunum um rasisma á bug og sakar Odd um atvinnuróg og dylgjur – „Þetta er lygi“