fbpx
Mánudagur 22.júlí 2024
Fréttir

Myndir þú loka barnið þitt í herbergi með barnaníðingi?

Ragna Gestsdóttir
Mánudaginn 22. júlí 2024 07:00

Mynd: Unsplash.com

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

,,Mynduð þið loka barnið ykkar inni í herbergi með ókunnugum þegar líkurnar eru meiri en minni á að það lendi í aðstæðum sem það ræður ekki við eins og kynferðislegu áreiti eða misnotkun?

Ekki? Þá þurfa foreldrar að hafa kjark og vit til að segja NEI við samfélagsmiðlanotkun barna. Fyrir þeirra öryggi, því ábyrgðin er okkar foreldranna,“

segir Álfhildur Leifsdóttir grunnskólakennari og foreldri í Skagafirði í grein sinni á Vísi.

Álfhildur rekur að skjátími barna og ungmenna er oft í samfélagsumræðunni og þá aðallega hvort banna eigi snjallsíma í skólum. Sjálf segist hún hafa meiri áhyggjur af því HVAÐ á sér stað í snjalltækjunum heldur en HVAR það á sér stað. 

,,Rannsóknir sýna að samfélagsmiðlar auka vanlíðan barna og kvíða fyrir utan markaðshyggjuna sem þar ríkir. Það er skammgóður vermir að varpa ábyrgðinni yfir á skólana með einhverskonar símabanni. Snjalltæki í skólum eru nýtt til náms og í þeim tækjum er ekki aðgangur að Snapchat eða Tiktok. Samfélagsmiðlanotkun er samfélagsvandi og þar bera foreldrar ábyrgðina. Það er tímabært að samfélagið horfist í augu við það og axli þá ábyrgð en varpi henni ekki annað.“

13 ára aldurstakmark er á samfélagsmiðlum, en Álfhildur segir aldurstakmarkið ekki snúast um að þá hafi börn þroska til þess að vera á samfélagsmiðlum, heldur er það löglegt fyrir stóru risana á bak við miðlana að safna gögnum um notendur sína þegar þeir hafa náð 13 ára aldri. Samkvæmt íslensku æskulýðsrannsókninni eru um 60% barna á Íslandi á aldrinum 9-12 ára með aðgang að TikTok og Snapchat.

,,Snapchat er einstaklega varhugaverður staður þar sem fólk er gjarna undir dulnefni og auðvelt að bæta við nýjum ,,vinum“. Þar er líka erfitt fyrir foreldra að fylgjast með því skilaboð og myndir hverfa. Samkvæmt íslensku æskulýðsrannsókninni segja 35% barna á miðstigi og 65% barna á unglingastigi að foreldrar þeirra athugi aldrei hvað þau eru að gera á netinu.“

Álfhildur Leifsdóttir

Gerði sjálf tilraun á SnapChat

Álfhildur segist hafa gert óformlega tilraun undanfarið og samþykkt vinabeiðnir á Snapchat frá ýmsum aðilum. ,,Undantekningarlaust koma skilaboð um hæl þar sem ég er spurð um aldur og sagt að senda mynd. Það er verið að kanna hvað sé hægt að vinna með á hinum endanum. Beiðnirnar skipta tugum og nýjar bætist við daglega, áreitið er gríðarlegt. Börn ráða eðlilega ekki við slíkt áreiti og kunna ekki að setja mörk í þessum samskiptum.

Samkvæmt fyrrnefndri rannsókn hafa 58% unglingsstúlkna í 10. bekk á Íslandi orðið fyrir stafrænu kynferðisofbeldi og 35% drengja, allt í gegnum samfélagsmiðla. Þetta eru gríðarlega háar tölur en líka tölur sem einfalt er að breyta til batnaðar.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 2 dögum

Ása og börnin boðuðu til blaðamannafundar – „Enginn vill trúa því að fjölskyldumeðlimur, pabbi þeirra, bróðir eða eiginmaður geti framið slík myrkraverk“

Ása og börnin boðuðu til blaðamannafundar – „Enginn vill trúa því að fjölskyldumeðlimur, pabbi þeirra, bróðir eða eiginmaður geti framið slík myrkraverk“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Helgi vísar ásökunum um rasisma á bug og sakar Odd um atvinnuróg og dylgjur – „Þetta er lygi“

Helgi vísar ásökunum um rasisma á bug og sakar Odd um atvinnuróg og dylgjur – „Þetta er lygi“
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Kolbrúnu brá illa í morgun – „Þessu fólki er gert að búa á hreinum sorphaug“

Kolbrúnu brá illa í morgun – „Þessu fólki er gert að búa á hreinum sorphaug“
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Nuddarinn Guðbjartur sýknaður að beiðni saksóknara – Konan hafi reynt við hann og kært svo til lögreglu eftir að hann hafnaði henni og sleit meðferðarsambandinu

Nuddarinn Guðbjartur sýknaður að beiðni saksóknara – Konan hafi reynt við hann og kært svo til lögreglu eftir að hann hafnaði henni og sleit meðferðarsambandinu