fbpx
Laugardagur 20.júlí 2024
Fréttir

Þrír erlendir ferðamenn grunaðir um meiriháttar líkamsárás

Ágúst Borgþór Sverrisson
Laugardaginn 20. júlí 2024 08:07

Mynd: DV/Maggi gnúsari

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Þrír erlendir ferðamenn voru handteknir í nótt, grunaðir um meiriháttar líkamsárás í miðborg Reykjavíkur, en árásarþoli hlaut tannbrot eftir hnefahögg í andlitið. Þá fundust fíkniefni, ætlað kókaín, á tveimur hinna handteknu og voru efnin haldlögð. Mennirnir voru vistaðir í fangageymslu og árásarþola var leiðbeint um aðhlynningu og næstu skref málsins.

Þetta kemur fram í dagbók lögreglu um störf lögreglunnar síðasta hálfa sólarhringinn. Þar segir einnig frá því að óskað aðstoðar lögreglu vegna manns, sem gekk berserksgang með vínflösku í hendi um miðbæ Reykjavíkur. Maðurinn var mjög æstur og ógnandi og hlýddi engum fyrirmælum þeirra lögreglumanna, sem reyndu að nálgast hann. Hann var því tekinn lögreglutökum og handtekinn. Maðurinn var í annarlegu ástandi og algjörlega óviðræðuhæfur, því var hann vistaður í fangageymslu enda hann ekki fær um að vera úti meðal fólks.

Starfsmaður verslunar var grunaður um að stela vörum úr versluninni að andvirði 865 kr., en sá hafði áður stolið úr versluninni. Starfsmanninum var sagt upp á staðnum og þá var kæra lögð fram á hendur honum vegna þjófnaðarins.

Kona og karl voru handtekin, grunuð um dreifingu og sölu fíkniefna. Lögreglumenn fundu maríhúana lykt koma frá íbúð og könnuðu málið. Maður kom til dyra, en þegar lögreglumenn kynntu honum ástæðu afskiptanna reyndi hann að skella hurðinni á þá og þannig koma sér undan. Lögreglumenn ýttu hurðinni upp og handtóku manninn, en hann veitti talsverða mótspyrnu. Úr varð að lögreglumenn gerðu húsleit í íbúðinni með samþykki húsráðanda. Við leitina fannst talsvert magn af fíkniefnum, bæði ætluðu maríhúana og hvítum efnum, auk peningaseðla, sem er ætlaður ágóði af sölu fíkniefna. Fólkið var fært til skýrslutöku að lokinni stuttri vist í fangageymslu og síðan látið laust.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 2 dögum

Ótrúlegar myndir af einangruðum ættbálk í Perú – Heimkynni þeirra eru í hættu

Ótrúlegar myndir af einangruðum ættbálk í Perú – Heimkynni þeirra eru í hættu
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Íris Dögg ráðin framkvæmdastjóri geðheilbrigðisþjónustu

Íris Dögg ráðin framkvæmdastjóri geðheilbrigðisþjónustu