fbpx
Föstudagur 19.júlí 2024
Fréttir

Tæknibilun í vírusvarnarhugbúnaði virðist hafa valdið ringulreið á heimsvísu – „Jæja, þá kemst maður kannski ekki heim“

Ritstjórn DV
Föstudaginn 19. júlí 2024 09:02

Ringulreið ríkir á flugvöllum víða um heim.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Kerfisbilun í stýrikerfi Microsoft hefur valdið fullkominni ringulreið á heimsvísu. Búið er að kyrrsetja eða fresta flugferðum um allan heim og þá hafa bankar, fkreditkortafyrirtæki, fjarskiptafyrirtæki og fjölmiðlar upplifað örðugleika í starfsemi sinni. Vandamálið virðist tengjast nýrri uppfærslu hjá bandaríska hugbúnaðarfyrirtækinu Crowdstrike, sem sérhæfir sig í vírusvörnum og þjónustar meðal annars Microsoft. Svo virðist sem uppfærslan á vírusvarnarforritinu Crowdstrike Falcon valdi því að stýrikerfi tæknirisans hrynur. Microsoft hefur boðað að verið sé að vinna í mildunaraðgerðum en óvíst er hversu hratt lausn finnst á vandanum.

Búast má við gríðarlegum seinkunum og niðurfellingum fluga um allan heim vegna vandamálsins þar sem bókunar- og innritunarkerfi fjölmargra stórra flugfélaga liggur niðri. Hefur verið brugðið á það ráð sumsstaðar að skrifa komu- og brottfarartíma handvirkt á tússtöflur og handskrifuð brottfararspjöld eru farin að láta á sér kræla.

Aftur til fortíðar

Samkvæmt frétt Mbl.is hefur Isavia orðið vart við vandamálið en þó ekki með beinum hættum, aðeins þannig að flug til landsins hafa tafist eða þau felld niður. Einn af þeim sem á flug í dag er fjölmiðlamaðurinn Egill Helgason, sem dvalið hefur í Grikklandi ásamt fjölskyldu sinni undanfarin misseri. „Jæja, þá kemst maður kannski ekki heim,“ sagði fjölmiðlamaðurinn svartsýnn fyrir stundu á Facebook-síðu sinni og sér fram á strembinn dag.

 

 

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Í gær

Ingólfur Valur stefnir ríkinu og krefst miskabóta vegna ólöglegrar handtöku

Ingólfur Valur stefnir ríkinu og krefst miskabóta vegna ólöglegrar handtöku
Fréttir
Í gær

Arnar segist fórnarlamb skattyfirvalda – „Refsað fyrir að yfirgefa Ísland“

Arnar segist fórnarlamb skattyfirvalda – „Refsað fyrir að yfirgefa Ísland“
Fréttir
Í gær

Krefur fyrrverandi eiginmann sinn um 18 milljónir – Segist búa á Spáni en finnst ekki

Krefur fyrrverandi eiginmann sinn um 18 milljónir – Segist búa á Spáni en finnst ekki
Fréttir
Í gær

Ráðist á íslenska konu og fjölskyldu hennar á bar á Krít – Fjögur flutt á spítala

Ráðist á íslenska konu og fjölskyldu hennar á bar á Krít – Fjögur flutt á spítala
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Langar biðraðir hjá Fjölskylduhjálpinni – „Yfirvöld virðist ekki gefa þessu nokkurn einasta gaum“

Langar biðraðir hjá Fjölskylduhjálpinni – „Yfirvöld virðist ekki gefa þessu nokkurn einasta gaum“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Segir bikblæðingar ekki réttlætanlegar og Vegagerðina ábyrga – Ákveðnir vegir hreinlega hættulegir

Segir bikblæðingar ekki réttlætanlegar og Vegagerðina ábyrga – Ákveðnir vegir hreinlega hættulegir