Íslenskur maður á sextugsaldri fannst látinn á hótelherbergi í Samut Prakan í Tælandi. Lögregla rannsakar málið en engin augljós merki um átök fundust í herberginu.
Tælenski fjölmiðillinn The Thaiger greinir frá þessu og segir málið dularfullt.
Samut Prakan er sunnan við höfuðborgina Bangkok. Að sögn hótelstarfsfólks hafði Íslendingurinn dvalið á hótelinu í um einn mánuð. Þegar hann kom ekki niður á sínum hefðbundna tíma, um klukkan 10:30, var farið að athuga með hann. En maðurinn endurnýjaði leiguna á hverjum degi. Starfsmaður opnaði herbergið með korti og fann manninn látinn.
Í frétt The Thaiger kemur fram að maðurinn hafi verið 54 ára gamall. Hann fannst liggjandi við hliðina á rúminu sínu, klæddur í svartan bol og rauðar stuttbuxur. Talið er að hann hafi verið látinn í sex til tólf klukkustundir þegar hann fannst.
Eins og áður segir voru engin merki um átök á hótelherbergi mannsins en þar fundust hins vegar nokkrar áfengisflöskur. Sagði starfsmaður hótelsins að maðurinn hefði lagt það í vana sinn að drekka áfengi á hverjum degi.
Án þess að það sé staðfest þá hefur lögreglan í Samut Prakan grunsemdir um að maðurinn kynni að hafa látist af ofneyslu áfengis. Krufning á hins vegar eftir að fara fram á Ramathibodi Chakri Naruebodindra spítalanum þangað sem lík hans var flutt.
Ægir Þór Eysteinsson, upplýsingafulltrúi utanríkisráðuneytisins, staðfestir að umrætt mál sé komið inn á borð borgaraþjónustu ráðuneytisins, en ekki verði veittar frekari upplýsingar um einstök mál.