Kristján segir meðal annars í viðtalinu að hvalastofnar í kringum landið séu mjög stórir og bendir á að hvalirnir éti ekkert megrunarkex. „Þeir eru núna í þessum loðnuleitartúrum og þá eru hnúfubakar og hrefnur innan um þetta allt saman. Og þessir hvalir eru þarna að éta, þeir eru ekkert þarna að gamni sínu.“
Náttúruverndarsinnar hafa haldið því fram að hvalirnir séu gáfaðar skepnur og þess vegna eigi ekki að veiða þá. Kristján blæs á slíkar fullyrðingar.
„Nei, þetta er bara uppspuni sem er kokkaður upp. Menn hafa kíkt til dæmis á hippocampus sem er í langreyði, sem er einnig í mönnum, er mér tjáð, þar sem minnið þitt er geymt í heilanum. Í langreyði er hann eiginlega mjög lítill og þannig upp byggður að það er talið að hann muni ekkert frá degi til dags.“
Kristján segir einnig í viðtalinu að ýmislegt bendi til þess að náttúruverndarsinnar séu að bíða hann af sér eins og það er orðað.
„Ég veit ekki hvort þeir vilji mig feigan en aðalmálið er að þeir eru búnir að fletta upp í þjóðskrá og vita hvað ég er gamall og þeir eru alltaf að bíða eftir því að ég hrökkvi upp af.“