fbpx
Þriðjudagur 02.júlí 2024
Fréttir

50 ár frá því að lögreglukonur klæddust einkennisbúningi í fyrsta sinn

Ragna Gestsdóttir
Sunnudaginn 30. júní 2024 15:00

Katrín Þorkelsdóttir og Dóra Hlín Ingólfsdóttir Mynd: Facebook

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Í dag, 30. júní, eru 50 ár liðin frá því að lögreglukonur klæddust einkennisbúningi í fyrsta sinn. Katrín Þorkelsdóttir og Dóra Hlín Ingólfsdóttir voru fyrstar til að klæðast sérstökum einkennisbúningi fyrir lögreglukonur.

Hér til viðbótar koma fáeinar myndir frá sama tímabili.

Tímamótunum var fagnað fyrr í mánuðinum með veglegu hófi í félagsheimili Lögreglufélags Reykjavíkur. Á meðal ræðumanna var Katrín Þorkelsdóttir og rifjaði hún upp þennan tíma. Þá var bókstaflega öldin önnur og tíðarandinn eftir því, en hreint magnað var að heyra frásögn Katrínar af þessum upphafsárum þeirra. Hin lögreglukonan, sem um ræðir, er Dóra Hlín Ingólfsdóttir, sem lést fyrir nokkrum árum, en hún starfaði í lögreglunni um áratugaskeið. Fljótlega bættust fleiri lögreglukonur í hópinn, sem var þó harla lítill í þeim mikla karlaheimi sem lögreglan var í þá daga, eins og segir í færslu á Facebooksíðu Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu.

Þessi fyrsti dagur einkennisklæddra lögreglukvenna var 30. júní 1974, sama dag og alþingiskosningar fóru fram, og ráku þá margir upp stór augu. Aðdragandinn var alllangur, en rúmlega tíu árum árum fyrr hafði lögreglustjórinn í Reykjavík, Sigurjón Sigurðsson, rætt um það í yfirstjórn lögreglunnar í Reykjavík að koma á fót einkennisklæddri kvenlögregludeild hjá embættinu. Hann kvað heldur ekki annað koma til greina en að kvenlögreglan hefði aðstöðu algjörlega út af fyrir sig. Sú varð líka raunin árið 1974, en breyttist síðan þegar kvenlögregludeildin hjá lögreglunni í Reykjavík var sameinuð almennri löggæslu þess embættis 11. maí 1976.

Fjölmennt var í boðinu þann 6. júní þegar 50 árunum var fagnað og gleðin eftir því, en boðið var upp á mjög áhugaverða dagskrá þar sem sögunni voru gerð góð skil. Sandra Sif Ottadóttir tók myndir, en á þeirri fyrstu má sjá nokkrar konur sem sannarlega ruddu brautina fyrir þær sem á eftir komu. Þetta eru Katrín Þorkelsdóttir, Arnþrúður Karlsdóttir, Björg Jóhannesdóttir, Bonnie Laufey Dupuis, Svanhvít Eygló Ingólfsdóttir, Sigrún Ólafsdóttir og Jónína Sigurðardóttir, sem allar hófu störf í lögreglunni á áttunda áratug síðustu aldar. Með þeim á myndinni eru Guðrún Hafsteinsdóttir dómsmálaráðherra, sem flutti opnunarávarp í hófinu, og Halla Bergþóra Björnsdóttir, lögreglustjóri á höfuðborgarsvæðinu.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Í gær

Þjófagengi grunað um að stela 20 milljónum á ári frá skátunum – „Erlendir menn eru hreinlega sendir hingað í þetta“

Þjófagengi grunað um að stela 20 milljónum á ári frá skátunum – „Erlendir menn eru hreinlega sendir hingað í þetta“
Fréttir
Í gær

Elon Musk sakar varaforseta Bandaríkjanna um lygar

Elon Musk sakar varaforseta Bandaríkjanna um lygar