Árum saman hefur verið ein flöt skattprósenta í Rússlandi en nú verður breyting á. Þingið hefur samþykkt að taka upp nýtt skattkerfi þar sem skattabyrðin þyngist eftir því sem fólk þénar meira.
Ástæðan er einföld – Það vantar peninga í ríkissjóð til að fjármagna stríðsreksturinn.
Frá 2021 hefur verið 13% flatur tekjuskattur í landinu en þeir sem þéna meira en fimm milljónir rúbla, sem svarar til tæplega 8 milljóna íslenskra króna, greiða þó 15% tekjuskatt.
Með nýja skattkerfinu hækkar skattbyrði þeirra ríkustu upp í 22%. Þetta mun að sögn rússnesku Interfax fréttastofunnar skila ríkissjóði sem svarar til um 4.000 milljarða íslenskra króna í auknum tekjum á næsta ári.
Rússneskir fjölmiðlar hafa ekki nefnt einu orði að peningarnir verði notaðir til að fjármagna stríðsreksturinn en hafa sagt að þeir verði notaðir til samfélagsverkefna, innviða og þróunar rússnesks efnahagslífs.
Vladímír Pútín, forseti, segir að skattahækkunin hafi aðeins áhrif á um 3% landsmanna.
Fyrirtækjaskattur verður einnig hækkaður, fer úr 20% í 25%.