En þessi tilvik eru hluti af aukinni spennu á milli Kóreuríkjanna og ekki dró það úr spennunni að Vladímír Pútín, Rússlandsforseti, heimsótti Kim Jong-un, einræðisherra í Norður-Kóreu, í síðustu viku.
Í kjölfar heimsóknarinnar fordæmdu suðurkóresk stjórnvöld einn af þeim samningum sem Pútín og Kim Jong-un skrifuðu undir. Þetta er samningur þar sem ríkin skuldbinda sig til að veita hvort öðru „hernaðarlega aðstoð“ ef ráðist verður á þau.
Segja suðurkóresk yfirvöld að þau líti á þetta sem ógn við öryggi Suður-Kóreu og nú muni þau taka til íhugunar hvort þau eigi að láta Úkraínu vopn í té.
Pútín frétti auðvitað strax af þessu og sagði að það verði stór mistök hjá Suður-Kóreu ef landið ákveður að láta Úkraínu vopn í té. Rússnesk stjórnvöld muni þá taka ákvarðanir sem „muni varla gleðja suðurkóreska ráðamenn“.
Suður-Kórea hefur stutt Úkraínu með mannúðaraðstoð og fjárframlögum fram að þessu en hefur ekki viljað láta vopn af hendi.