fbpx
Laugardagur 23.nóvember 2024
Fréttir

Hitinn gæti farið í 27 stig á sunnudag – Svo gerist þetta

Ritstjórn DV
Þriðjudaginn 25. júní 2024 10:33

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Það er óhætt að segja að mikil hlýindi séu í veðurspánum fyrir helgina í ákveðnum landshlutum. Íbúar á suðvesturhorni landsins eru þó strax varaðir við of mikilli bjartsýni því þar verða litlar breytingar í veðri.

Einar Sveinbjörnsson, veðurfræðingur á Blika.is, skrifar pistil um veðurspá næstu daga og segir hann að hlýtt og sumarlegt loft hafi verið á sveimi fyrir sunnan og austan landið síðustu daga, án þess að hafa náð hingað að marki.

„Nú eru hins vegar ágætur líkur á því að virkilega hlýtt loft komi og fari yfir landið,“ segir hann.

Einar segir að hlýja loftið komi úr suðvestri og sé einn angi hitabylgjunnar sem nú ríkir á austurströnd Norður-Ameríku.

„Sjáum rísandi hæðarhrygg og hlýja bylgju í spám um háloftavinda. Á föstudagsmorgun er þannig gert ráð fyrir mjög greinilegri slíkri bylgju austur af Nýfundnalandi og suður af Grænlandi,“ segir Einar og birtir kort máli sínu til stuðnings.

„Þrálátur grænn liturinn á þessu korti það sem af er sumri, verður þá enn yfir landinu. Sá litur vísar á svalt loft og stutt í háloftalægðina. Á þessum tímapunkti líklega um 5 til 7 stiga hiti eystra,“ segir hann.

Hann bætir við að bylgjan haldi áfram að rísa og ferðast til norðausturs og berst hún hingað að Vesturlandi á laugardag og þar með sumarveðri, einkum á laugardagskvöldið, en yfir austanvert landið á sunnudag. Segir hann að með hlýja loftinu létti líka mikið til.

En hvað þýðir þetta?

Blika spáir 20 stiga hita á Egilsstaðaflugvelli klukkan 18 á sunnudag en hráspá og óleiðrétt spá Evrópsku reiknimiðstöðvarinnar sýni allt að 27 stiga hita síðdegis á Egilsstöðum. Einar segir þó rétt að vara við of mikilli bjartsýni því landvindurinn verði á mörkum þess að ná að halda nægjanlega aftur af hafgolunni norðan- og austanlands.

„Um 60% líkur eru á svo afgerandi spá í safnspánum frá Evrópsku reiknimiðstöðinni.  Hins vegar gengur bylgjan áfram hratt til austurs, svo aðeins verður um þennan eina dag að ræða og um að gera að nýta hann vel,“ segir Einar.

Það má því reikna með að þessi „hitabylgja“ verði heldur skammlíf og við taki kunnuglegt stef. Segir Einar að allar líkur séu á að svalt loft af einhverju tagi nái aftur yfirhöndinni fyrstu dagana í júlí.

Ef marka má spákort Bliku verður áfram þungbúið yfir höfuðborgarsvæðinu næstu vikuna að minnsta kosti. Þá mun kólna á Akureyri þegar líða tekur á næstu viku og ekki ólíklegt að hiti þar fari vel undir 10 gráðurnar á fimmtudag og föstudag.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 15 klukkutímum

Erna segir skilið við Miðflokkinn en hafði sóst eftir oddvitasæti – „Miðflokkurinn gekk úr mér“

Erna segir skilið við Miðflokkinn en hafði sóst eftir oddvitasæti – „Miðflokkurinn gekk úr mér“
Fréttir
Fyrir 17 klukkutímum

Össur tætir Pírata í sig: „Málefnalega skipta þau ekki lengur máli“

Össur tætir Pírata í sig: „Málefnalega skipta þau ekki lengur máli“
Fréttir
Í gær

Alexandra lætur Sigmund Davíð fá það óþvegið: „Er maðurinn fimm ára?“

Alexandra lætur Sigmund Davíð fá það óþvegið: „Er maðurinn fimm ára?“
Fréttir
Í gær

Sigurður Ingi skýtur hugmynd Miðflokksins í kaf: „Já, þetta er vitlaus hugmynd“

Sigurður Ingi skýtur hugmynd Miðflokksins í kaf: „Já, þetta er vitlaus hugmynd“