fbpx
Föstudagur 28.júní 2024
Fréttir

Sigrún segir mannréttindi brotin daglega og stórfellt á gömlu veiku fólki -„Sem ekki getur borið hönd fyrir höfuð sér“

Ragna Gestsdóttir
Mánudaginn 24. júní 2024 11:00

Mynd: Unsplash.com

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

„„Jæja, þá erum við komin á leikskólann,“ segir ein öldruð kona og brosir, tilbúin að leiða auðmýkinguna hjá sér. Henni væri alveg óhætt að halda langa ræðu um málið, því starfsfólkið myndi ekki skilja hana. Íslenskukunnátta þeirra – flestra – nær varla yfir að skilja einföld skilaboð, þau misskiljast iðulega“

segir Sigrún Þorgrímsdóttir sérfræðingur í öldrunarhjúkrun, aldraður Íslendingur og aðstandandi í grein sinni á Vísi, sem ber titilinn Kvöld­stund á öldrunarspítalanum, þar sem hún lýsir dæmigerðum kvöldmatartíma á svokallaðri endurhæfingardeild fyrir aldraða.

Þar hefst kvöldmatur ekki á bilinu klukkan 18-19 eða síðar, heldur ekki seinna en klukkan 17.30.

„Það er að koma kvöldmatur. Gamla fólkið hugsar sér til hreyfings, flestir þurfa a.m.k. að styðjast við göngugrind, en sumir þurfa að auki aðstoð starfsfólks. Upp úr klukkan fimm fer fólk að koma sér fyrir við borðin, því maturinn er serveraður ekki seinna en hálf sex og yfirleitt reynt að drífa hann af á næsta hálftímanum,“ segir Sigrún og segir að um leið og eldri borgarnir séu sestir komi starfsmaður og hengi smekki um háls þeirra. 

„Það er kannski korter í matinn, kannski hvorki vill viðkomandi smekk né þarfnast hans, en það er ekki til umræðu enda starfsmaðurinn oftast lítt fær um að mæla á eða skilja tungu gamlingjanna. Ekki er líklegt að starfsmaðurinn hafi heldur fengið neina fræðslu um persónumiðaða þjónustu, enda kemur hann oft frá löndum þar sem fjölskyldan sér um gamla fólkið sitt og öldrunarþjónusta að hætti Íslendinga er því framandi. – Í Suðaustur Asíu, en þangað kemur stærstur hluti starfsmannanna, er það hrein skömm að þurfa að búa á hjúkrunarheimili, og jafnvel á sjúkrahúsi er langlíklegast að fjölskyldan sjái um umönnun fyrir viðkomandi. Einungis fátækir einstæðingar þurfa opinbera þjónustu í ellinni.“

Sigrún segir að henni þyki leiðinlegt að vekja athygli á málefninu, henni þyki vænt um íslenska öldrunarþjónustu og um þær stofnanir sem hún þekkir og reyna að sinna öldrunarþjónustu, iðulega af miklum vanefnum. Hún vilji ekki ráðast að þjónustunni frekar koma henni til varnar. Nú geti hún hins vegar ekki þagað lengur.

Sigrún Þorgrímsdóttir

Segir mannréttindi brotin daglega á eldra veiku fólki

„Því ef enginn segir frá upphátt og opinberlega hvar við erum á vegi stödd, hvað verður þá? Aðgerða er þörf.

Ég skora á heilbrigðisyfirvöld, á Landspítala, á fagfélög sem í hlut eiga og þá fyrst og fremst mitt eigið félag, Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga að taka höndum saman og ráðast í úrbætur. Þetta ástand er daglegt og stórfellt mannréttindabrot á gömlu veiku fólki sem ekki getur sjálft borið hönd fyrir höfuð sér.“

Sigrún segir virðingarröð ríkja í heilbrigðiskerfinu og hún sé mjög skýr í framkvæmd, þó hún finnist ekki í opinberum skjölum.

„Mikilvægt ákvæði óopinberu virðingarraðarinnar gæti litið svona út á pappír: Ef starfsemin er sérstaklega ætluð öldruðum þarf ekki mikið af fagfólki. – Þetta ákvæði hefur ætíð gilt, en á seinni árum hefur bæst við: Fólkið þarf ekki að tala né skilja íslensku. Já, ég veit, það er hægt að finna ákvæði á pappírum sem kveða á um hið gagnstæða, en það skiptir jú engu máli andspænis raunveruleikanum. Inni í mengi öldrunar-heilbrigðisþjónustu er einnig ákveðin virðingarröð. Deildir eins og sú sem hér var verið að segja frá er þar í efstu röð.

Hjúkrunarheimilin eru þar neðst. En þau hafa samt ýmislegt til síns ágætis, sem ekki er endilega að heilsa á spítalanum. Þannig eru flestir núorðið með sitt eigið herbergi, og oft eigið baðherbergi einnig. Á deildinni sem hér er lýst eru tvíbýli og meira að segja eitt þríbýli – þar er svo þröngt að ekki er hægt að loka dyrunum. Það er erfitt að koma í heimsókn þar sem svona háttar til. – Einkalíf er minna en ekkert.“

Samskiptavandinn er verulegur

Sigrún nefnir dæmi um samskiptavandann: „á þrem vikum hafði ekki tekist að meta hvort sjúklingur einn væri fær um að tyggja kjöt. Því fékk hann samviskusamlega gráleitt hakk á diskinn sinn þegar aðrir borðuðu steikur. Þó þykir viðkomandi fátt betra en steikur. – Viðleitni til að fá fæðinu breytt bar ekki árangur fyrr en eftir mikið röfl í rúma tíu daga.“

Sigrún segir bæði eldri borgara og aðstandendur þeirra eiga í erfiðleikum með samskipti við starfsfólk, sem skilji ekki, jafnvel þó enska sé töluð. „Aðstandendur upplifa mikið óöryggi þegar tungumálaörðugleikar – og menningarmismunur – er kominn á þetta stig. Það get ég vitnað um af eigin reynslu, reynslu sem ég hefði gjarnan viljað vera án.“

Hugtakið Geymsla besta lýsingin

Sigrún segist hafa lært það að  hjúkrun væri samskiptafag að verulegu leyti. „Virk hlustun, fræðsla og fleira slíkt sem útheimtir samskipti á tungumáli sem starfsmaður og sjúklingur tala og skilja eru þar nauðsynleg tæki. Það liggur raunar í augum uppi og ætti ekki að þurfa að taka fram. En greinilega skiptir það ekki máli þegar í hlut eiga aldraðir hér í landinu.

Um ástand „endurhæfingar“ á deild sem ekki einu sinni ræður við að meta getu sjúklinganna til að matast ætla ég sem fæst að segja. „Geymsla“ virðist þó nærtækara hugtak ef dæma skal af því sem ég hef orðið vitni að. Enda hefur dvölin skilað sér í afturför í því tilviki sem ég þekki og ég efast ekki um það að svo sé um fleiri, einkum þá sem hrumastir eru og mesta þörf hafa fyrir hvatningu og aðstoð til að geta tekið framförum.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 19 klukkutímum

Neytendastofa slær á fingur Esju Legal – Flugbætur.is veittu rangar og villandi upplýsingar og brutu gegn góðum viðskiptaháttum

Neytendastofa slær á fingur Esju Legal – Flugbætur.is veittu rangar og villandi upplýsingar og brutu gegn góðum viðskiptaháttum
Fréttir
Fyrir 21 klukkutímum

Landsréttur staðfestir 8 ára fangelsi yfir Heiðari Erni fyrir hrottafullt og margítrekað ofbeldi í nánu sambandi

Landsréttur staðfestir 8 ára fangelsi yfir Heiðari Erni fyrir hrottafullt og margítrekað ofbeldi í nánu sambandi
Fréttir
Í gær

„Kannski eru Íslendingasögurnar okkar hetjusögur af fólki með ofvirkni“

„Kannski eru Íslendingasögurnar okkar hetjusögur af fólki með ofvirkni“
Fréttir
Í gær

RÚV og Sýn fara yfir verkferla

RÚV og Sýn fara yfir verkferla