fbpx
Laugardagur 29.júní 2024
Fréttir

Aðstoðuðu þrjá fiskibáta í vanda

Ragna Gestsdóttir
Mánudaginn 24. júní 2024 09:49

Mynd: Slysavarnafélagið Landsbjörg

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Björgunarskip Slysavarnafélagsins Landsbjargar í Neskaupstað annars vegar og á Patreksfirði hins vegar voru kölluð út í nótt og snemma í morgun til aðstoðar.

Áhöfn björgunarskipsins Hafbjargar í Neskaupstað var kölluð út um klukkan hálf fimm í nótt vegna skipverja á smærri fiskibát sem hafði slasast á fæti og ekki í ástandi til að sigla bátnum til hafnar. Stjórnstöð Landhelgisgæslunnar kallaði jafnframt út áhöfn þyrlu.

Hafbjörg lagði úr höfn rétt fyrir klukkan 5 með sjúkraflutningamann um borð og um svipað leiti fór þyrla í loftið frá Reykjavík.

Myndirnar eru frá aðgerðum Hafbjargar og Varðar í nótt.

Mynd: Slysavarnafélagið Landsbjörg

Hafbjörg var komin að bátnum sem var staddur um 16 sjómílur austur af Norðfjarðarhorni, rétt fyrir klukkan 6 í morgun og fóru 2 úr áhöfn hennar um borð í bátinn ásamt sjúkraflutningamanni. Einn úr áhöfn Hafbjargar tók þá við stjórn fiskibátsins á meðan búið var um skipverjann og hann undirbúinn undir hífingu um borð í þyrlu.

TF Eir var kominn að bátnum rétt upp úr klukkan 7 í morgun og hífði sjúkling í börum frá borði fiskibátsins um borð í þyrluna.

Hafbjörg og fiskibáturinn tóku þá stefnuna til Neskaupstaðar en TF Eir flaug til Egilstaða þar sem tekið var eldsneyti. Þyrlan flaug svo áfram með sjúklinginn til Reykjavíkur til aðhlynningar.

Rétt fyrir hálf sjö í morgun var svo áhöfn björgunarskipsins Varðar II á Patreksfirði kölluð út vegna fiskibáts sem hafði fengið rekald í skrúfuna og gat ekki haldið áfram veiðum. Vörður II fór úr höfn á Patreksfirði rétt fyrir sjö og hélt áleiðis að bátnum sem var þá staddur í mynni Patreksfjarðar. Vel gekk að koma taug á milli skipanna og var Vörður II tók stefnuna inn til Patreksfjarðar með bátinn í togi og kom inn til hafnar nú rétt upp úr klukkan 9.

Mynd: Slysavarnafélagið Landsbjörg

Um tvö leitið í nótt var björgunarsveitin Bára á Djúpavogi kölluð út vegna fiskibáts sem hafði misst stýri rétt austur af Papey. Björgunarfólk fór út til aðstoðar og tók bátinn í tog sem gekk vel og voru allir komnir að bryggju um hálf fimm í nótt. Þetta var annað útkall Báru á stuttum tíma því seinni partinn í gær var sveitin einnig kölluð út vegna einstaklings sem hafði fallið á reiðhjóli og handleggsbrotnað inn í Hamarsdal. Björgunarfólk fór ásamt sjúkraflutningum og flutti viðkomandi fram dalinn og í sjúkrabíl.

Mynd: Slysavarnafélagið Landsbjörg

 

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 18 klukkutímum

Gauti gáttaður á umræðunni – „Mér fannst þó steininn taka úr þegar ég las um kæru Kristjáns Hreinssonar“

Gauti gáttaður á umræðunni – „Mér fannst þó steininn taka úr þegar ég las um kæru Kristjáns Hreinssonar“
Fréttir
Fyrir 18 klukkutímum

Krefjast vaxtalækkunar tafarlaust

Krefjast vaxtalækkunar tafarlaust
Fréttir
Í gær

Hörður Ellert Ólafsson sakfelldur fyrir stórfelld kynferðisbrot gegn stjúpdóttur sinni

Hörður Ellert Ólafsson sakfelldur fyrir stórfelld kynferðisbrot gegn stjúpdóttur sinni
Fréttir
Í gær

Jólaskotárásin á Hvaleyrarholti: Ásgeir Þór fær 5 ár fyrir tilraun til manndráps

Jólaskotárásin á Hvaleyrarholti: Ásgeir Þór fær 5 ár fyrir tilraun til manndráps
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Þarf heppni að fylgja fæðingarorlofi? – „Það er ýmislegt á þessum lista sem fæst myndu kalla heppni en þetta er raunveruleikinn okkar“

Þarf heppni að fylgja fæðingarorlofi? – „Það er ýmislegt á þessum lista sem fæst myndu kalla heppni en þetta er raunveruleikinn okkar“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Anna mun flagga áfram 26. júní þó Guðni láti af embætti – Þetta er ástæðan

Anna mun flagga áfram 26. júní þó Guðni láti af embætti – Þetta er ástæðan
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Stóra fíkniefnamálið: Hópurinn sagður hafa starfað í um fimm ár – Afskipti lögreglu hófust í september

Stóra fíkniefnamálið: Hópurinn sagður hafa starfað í um fimm ár – Afskipti lögreglu hófust í september
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Bátavogsmálið: Sársaukaóp hins látna hljómuðu í dómsal

Bátavogsmálið: Sársaukaóp hins látna hljómuðu í dómsal